Hefði lækkað laun 225 starfsmanna
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir það hafa komið sér á óvart að Eydís Inga Valsdóttir, annar tveggja bæjarfulltrúa Samfylkingarin…
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ásamt bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar, Eydísi Ingu Valsdóttur og Jónasi Má Torfasyni. Samsett mynd
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir það hafa komið sér á óvart að Eydís Inga Valsdóttir, annar tveggja bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar sem lögðu fram tillögu um yfirvinnuþak í miðlægri stjórnsýslu Kópavogs, sé stjórnarmaður í stéttarfélaginu Visku.
Hefði tillagan orðið að veruleika hefði hún leitt til þess að heildarlaun 225 starfsmanna bæjarins lækkuðu, en meirihluti þeirra er félagsmenn í Visku.
Ásdís segir að í umræðum um tillöguna hafi hún ítrekað spurt flutningsmenn hennar hvort þeir hefðu yfirhöfuð borið hana undir stéttarfélögin og hver afstaða þeirra væri. Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, hefði þá svarað því til að þau hefðu ekki áhyggjur af afstöðu stéttarfélaganna.
Um gríðalega kjaraskerðinu að ræða
„Það sem er mikilvægt að hafa í huga varðandi þessa tillögu Samfylkingarinnar um fasta yfirvinnu er að þetta er einfaldlega hluti af launamyndunarkerfi sveitarfélaga almennt. Föst yfirvinna er ekki nægilega gagnsær mælikvarði á virði starfa og þess vegna höfum við þegar hafið vinnu við að breyta launamyndunarkerfinu. Það breytir þó ekki því að það eru auðvitað heildarlaunin sem skipta máli,“ segir Ásdís í samtali við mbl.is, spurð hvers vegna meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi lagst gegn tillögunni.
„Tillaga Samfylkingarinnar gengur út á að lækka heildarlaun 225 starfsmanna um 170 milljónir króna. Við sjáum það á þeim launagreiningum sem við höfum gert að við værum þá einfaldlega ekki með samkeppnishæf laun miðað við sambærileg störf í nærliggjandi sveitarfélögum.“
Ásdís telur að yrði þessi leið farin væri veruleg hætta á að bæjarfélagið missti starfsfólk til annarra sveitarfélaga, ekki síst reynslumesta starfsfólkið.
„Áður en farið er í svona gríðarlega kjaraskerðingu gagnvart starfsfólki þarf auðvitað að liggja fyrir greining. Ef ég á að segja alveg eins og er finnst mér óábyrgt að koma fram með tillögu um að lækka laun starfsmanna um 170 milljónir til að fjármagna eigin útgjaldahugmyndir,“ segir hún.
Kom verulega á óvart
Í viðtali við mbl.is á föstudaginn sagðist Tumi Kolbeinsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, gáttaður á því að Eydís Inga hefði, sem stjórnarmaður í öðru félagi innan BHM, lagt til að laun starfsmanna yrðu lækkuð.
„Þetta er mjög andstéttarfélagslegt. Þarna kemur Samfylkingin, jafnaðarmannahreyfing Íslands sprottin upp úr stéttabaráttu, fram með eitthvað sem skerðir laun starfsfólks. Kópavogur er vel rekið bæjarfélag og það er engin ástæða til að fara í eitthvað svona,“ sagði Tumi meðal annars.
Spurð um þetta sjónarmið segir Ásdís:
„Þetta kom mér auðvitað verulega á óvart, að annar bæjarfulltrúinn sé í stjórn stéttarfélagsins. Ég spurði Samfylkinguna margoft í bæjarstjórn, þegar hún kom fram með þessa tillögu, hvort hún hefði yfirhöfuð borið hana undir stéttarfélögin og hver afstaða hennar væri.“
Hún segir að Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, hafi svarað því til að þau hefðu engar áhyggjur af afstöðu stéttarfélaganna og teldu þetta eðlilega og æskilega leið.
„Þau höfðu heldur ekki áhyggjur af því hvaða áhrif þetta myndi hafa á núverandi starfsfólk á bæjarskrifstofunum eða hvort við myndum missa reynslumikið fólk frá okkur,“ segir Ásdís.
„Mér finnst þetta afskaplega óábyrg afstaða og óábyrg tillaga. Það er starfsfólk á bæjarskrifstofunum sem sinnir ofboðslega mikilvægum störfum og þetta hefði klárlega getað haft þau áhrif að við myndum missa reynslumesta fólkið frá okkur. Það hefði auðvitað áhrif á þá þjónustu sem við veitum.“
Myndi bitna á þjónustunni
Ásdís segir þó mikilvægt að sýna aðhald í launakostnaði og tryggja gagnsæi við launasetningu.
„Að mínu mati er þetta hins vegar ekki ábyrg leið og myndi hafa veruleg áhrif á starfsmannaveltu, ráðningar og á endanum þjónustu við íbúa,“ segir hún.
„Það er alveg rétt að við erum með mjög góðan rekstur og höfum staðið vörð um traustan rekstur. Við höfum hins vegar hagrætt á hverju ári og erum að fara í hagræðingu núna. Það er í raun hagræðing til að fara betur með fé íbúanna og bæta þjónustuna. En að mínu mati er þetta alls ekki ábyrg leið.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗