Forstjórinn lætur af störfum

Fernando, sem hefur gegnt starfinu í þrjú ár, hættir nú til að taka við nýju starfi.

Alcoa Fjarðarál leitar nú að nýjum forstjóra.

Alcoa Fjarðarál leitar nú að nýjum forstjóra. mbl.is/Sigurður Bogi

Fernando Costa lætur af störfum sem forstjóri Alcoa Fjarðaáls í næsta mánuði, en starfsfólki álversins var tilkynnt um breytingarnar í lok síðustu viku.

Austurfrétt greinir frá.

Fernando, sem hefur gegnt starfinu í þrjú ár, hættir nú til að taka við nýju starfi. Hann lætur af störfum þann 19. desember næstkomandi.

Í tilkynningu rekstrarstjóra Alcoa í Evrópu til starfsfólksins segir að starf forstjóra verði auglýst laust til umsóknar á morgun, mánudag.

Þá sé verið að ganga frá skipulagi stjórnunar þar til nýr forstjóri taki við. Markmiðið sé að tryggja greið stjórnendaskipti og samfellu í rekstri.

Fernando hefur búið á Íslandi frá árinu 2023.

Fernando hefur búið á Íslandi frá árinu 2023. mbl.is/Karítas

Í frétt Austurfréttar segir að Fernando hafi starfað innan Alcoa frá árinu 2002, en hann hóf störf í Alumar-álverinu í heimalandi sínu.

Árið 2015 flutti hann til Bandaríkjanna og tók við sem starfi tæknistjóri álversins í Wenatchee þar sem hann gegndi stjórnunarstörfum innan samsteypunnar þar til hann flutti til Íslands árið 2023.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Viðskiptafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读