Hvetja íslensk fyrirtæki til að bregðast við án tafar

Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að yfirfara netvarnir sínar í ljósi aukinnar netógnar. Ljósmynd/Colourbox

Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að yfirfara netvarnir sínar án tafar vegna aukinnar netógnar. Með tilkomu gervigreindar hafa árásaraðilar öðlast aukna getu til að gera netárásir á skemmri tíma en áður.

Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, vekur sérstaka athygli á leiðbeiningum netöryggissveitarinnar CERT-IS í samtali við mbl.is í dag og hvetur til þess að þeim verði komið á framfæri.

Almannavarnir og CERT-IS virkjuðu í gær viðbragðsáætlun um verndun ómissandi upplýsingainnviða á óvissustigi vegna aukinnar notkunar gervigreindar við netárásir.

Skemmri tími til að bregðast við

Í leiðbeiningum CERT-IS, sem birtar voru í gær, kemur fram að aðferðir sem áður kröfðust sérhæfðrar þekkingar séu nú á færi fleiri.

Meðal áhættuþátta sem sveitin tilgreinir eru misnotkun stolinna aðgangsupplýsinga og hætta á gagnaþjófnaði. Þá geta veikleikar í netvörnum birgja og þjónustuveitenda stofnað kerfum viðskiptavina þeirra í hættu.

Aukinn hraði árásanna þýðir jafnframt að minni tími gefst til að greina þær og koma í veg fyrir tjón.

CERT-IS beinir eftirfarandi ráðleggingum til íslenskra fyrirtækja og stofnana:

Auðkenning og aðgangsheimildir

  • Virkja fjölþátta auðkenningu, einkum fyrir stjórnendur kerfa og þá sem tengjast þeim utan vinnustaðar.
  • Endurskoða heimildir notenda og forrita og loka fyrir aðganga sem ekki er lengur þörf á.
  • Endurnýja lykilorð og aðgangslykla sem grunur leikur á að óviðkomandi hafi komist yfir.

Öryggi tölvukerfa

  • Fara yfir hvaða kerfi og þjónusta eru aðgengileg á netinu.
  • Takmarka aðgang að stjórnunarkerfum við traust tölvunet.
  • Setja inn nýjustu öryggisuppfærslur.
  • Gæta sérstaklega að eldri kerfum sem kunna að hafa orðið út undan í öryggiseftirliti.

Skýjaþjónusta og samstarfsaðilar

  • Endurskoða heimildir í skýjaþjónustum, til dæmis Microsoft Azure og AWS.
  • Fylgjast með grunsamlegri virkni í forritum og þjónustuaðgöngum.
  • Ganga úr skugga um að birgjar og samstarfsaðilar hafi ekki víðtækari aðgang að kerfum en nauðsyn krefur.

Viðbúnaður og eftirlit

  • Vera vakandi fyrir óvenjulegum innskráningum og breytingum á umfangi gagnaflutninga.
  • Varðveita atburðaskrár svo unnt sé að nýta þær við rannsókn netöryggisatvika.
  • Endurskoða viðbragðsáætlanir og tryggja að ljóst sé hver beri ábyrgð og hverjum skuli gert viðvart.

Mikilvægt að tilkynna grunsamleg atvik

Vakni grunur um óheimila notkun upplýsingakerfa er mælst til þess að brugðist sé við samkvæmt viðbragðsáætlun, sönnunargögn varðveitt og atvikið tilkynnt til CERT-IS.

Nánari upplýsingar um ráðstafanirnar og tilkynningar um netöryggisatvik er að finna á vef CERT-IS.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab