Þyrlan var farin að rembast við hífinguna
„Ég var farinn að ganga þannig á vélbúnaðinn og autopilotið farið að blikka á mig,“ segir Jens í viðtali í Spursmálum. Hann sá á mælum þyrlunnar…
Tveir skipverjar af Jökli voru enn á lífi í sjónum þegar Jens Þór Sigurðsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, ákvað að rjúfa hífinguna og fljúga frá þeim um stund. Fimmtán skipverjar voru þegar komnir um borð og álagið á vélbúnað þyrlunnar var orðið of mikið. Í svartamyrkri og mikilli öldu flaug Jens í hring við mennina til að brenna eldsneyti og létta þyrluna svo hægt væri að hífa þá síðustu upp.
„Ég var farinn að ganga þannig á vélbúnaðinn og autopilotið farið að blikka á mig,“ segir Jens í viðtali í Spursmálum. Hann sá á mælum þyrlunnar að hún var farin að rembast við verkefnið. Hann þurfti að taka ákvörðun sem hann lýsir sem örlagaríkri. Mennirnir tveir yrðu að bíða í sjónum á meðan þyrlan léttist.
TF-GRÓ er þyrlan sem nýtt var til björgunarstarfsins á miðvikudaginn í síðustu viku. Hér er hún á æfingu þar sem hífingar voru í forgrunni. mbl.is/Árni Sæberg
Íhuguðu að varpa búnaði út
Áhöfnin hafði þegar gert ráð fyrir því að þyngdin gæti orðið vandamál. Þegar þyrlan millilenti á Hornafirði til að taka eldsneyti lá fyrir að allir sautján skipverjarnir væru komnir í sjóinn. Þar voru sæti, börur og annar laus búnaður tekinn úr þyrlunni. Jens segir að hvert kíló hafi skipt máli. Skipverjarnir voru í björgunargöllum og sjómaður í galla fullum af sjó gæti að hans mati nálgast 200 kíló.
Á vettvangi velti áhöfnin fyrir sér hvað fleira mætti fjarlægja. Um borð var rekki fyrir sjúkrabúnað sem hefði getað létt þyrluna ef hægt hefði verið að losa hann.
„Það var ein hugmyndin að losa þennan rekka og losa hann bara í hafið,“ segir Jens. Þá hafði skipverjunum fjölgað svo um borð að ekki var hægt að losa rekkann og koma honum út.
Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefansson læknir, Jens Sigurðsson flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Brenndi 140 kílóum
Jens flaug í hring við mennina og brenndi um 140 kílóum af eldsneyti. Þyrlan léttist nægilega til að hann gæti snúið aftur og áhöfnin lokið hífingunni. Jens segir að það hafi verið það síðasta sem þau vildu að þurfa að skilja tvo lifandi menn eftir í sjónum við þessar aðstæður.
Hann segir þjálfunina hafa skipt máli þegar á reyndi. Áhafnir Gæslunnar æfa meðal annars hífingar við erfiðar aðstæður í flughermi. Þær hafa einnig sannreynt útreikninga á afkastagetu þyrlunnar við æfingar hér heima og erlendis. Þeir útreikningar hjálpuðu Jens að meta hve mikið þyrfti að létta vélina til að ljúka verkinu.
Komu með alla heim
Þegar síðustu tveir mennirnir voru komnir upp voru 23 um borð, þar af sex í áhöfn þyrlunnar. Við brottför frá slysstað voru um 480 kíló af eldsneyti eftir. Samkvæmt útreikningum áhafnarinnar dugði það til flugsins til Egilsstaða, eins aðflugs og öruggrar lendingar.
Jens lýsir miklum létti þegar hífingunni var lokið. Áhöfnin var orðin lúin eftir margra klukkustunda flug. Nú var hægt að kveikja á hitanum og gefa skipbrotsmönnunum að borða. Hann segir verulega hafa verið farið að draga af þeim í sjónum.
Hið áhrifamikla viðtal við Jens má sjá og heyra í spilaranum hér að neðan:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
