„Verðum að komast upp úr skotgröfunum“
Á fundi Veiðifélags Árnesinga sem haldinn var í gær vegna alvarlegrar stöðu laxastofnsins á Ölfusár – Hvítár svæðinu mátti heyra að menn hafa ve…
Helgi S. Haraldsson, formaður Veiðifélags Árnesinga ávarpar fundinn í gær sem haldinn var í félagsheimilinu Félagslundi í Flóahreppi. Hann segir menn verða að komast upp úr skotgröfunum. Ljósmynd/Sporðaköst
Veiðiréttarhafar, leigutakar og áhugmenn um laxveiði á vatnasvæði Veiðifélags Árnesinga – VÁ, héldu fund í gær um alvarlega stöðu laxastofnsins á svæðinu sem hefur verið í niðursveiflu síðustu ár. Fundurinn var ágætlega sóttur og heyra mátti á fundargestum að menn hafa áhyggjur. Guðni Guðbergsson sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun flutti erindi á fundinum þar sem hann fór yfir lífsferil laxins og ræddi stöðu mála á vatnasvæði félagsins. Hann benti á að samkvæmt mati á seiðavísitölu þá blikka gul ljós.
Guðni benti á að ábyrgð á nýtingu er allra þeirra sem eiga land að veiðivatni. Þeir bera sameiginlega ábyrgð á því að nýting sé sjálfbær. Hann sagði að miða þyrfti veiði við veiðiþol stofna og að mikilvægt væri að missa ekki niður stofnstærðina því uppbygging taki langan tíma og að kynslóðatíminn væri 5 til 7 ár. Jafnframt nefndi hann að aðgerðir síðustu ára hefðu ekki skilað sér nægilega vel.
Veiðifyrirkomulag og stjórnun er með ólíkum hætti á því víðfeðma vatnasvæði sem VÁ tekur til. Allt frá fluguveiði í ferskvatni með sleppiskyldu á laxi til netaveiði í jökulvatni. Átakalínur í félaginu hafa verið miklar og þar takast á ólíkir hagsmunir. Sporðaköst báru upp spurningu á fundinum hvort ástæða væri til að banna netaveiði og dráp á laxi af hálfu stangaveiðimanna í ljósi þess að gul ljós væru farin að blikka.
Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun flutti erindi á fundinum. Á línuritinu á bak við hann má sjá þróun laxastofnsins á svæðinu. Staðan er alvarleg. Ljósmynd/Sporðaköst
Guðni svaraði því til að lagaumgjörð um slík mál byði í raun ekki upp á slíkar aðgerðir fyrr en útrýmingarhætta vofði yfir. Hann benti á að staðan væri ekki orðin með þeim hætti. Heyra mátti á honum að verkfærakista til aðgerða væri fátækleg en helst væri að horfa til þess að draga úr sókn.
Skylduslepping á stórlaxi?
Fleiri voru á þeim nótum og sagði Helgi S. Haraldsson formaður VÁ að samkvæmt veiðitölum frá 2025 hefði netaveiði minnkað það ár um 44% og stangveiði um 24% hann var ekki með tölur fyrir nýliðið sumar. „Það hafa verið tilmæli í nýtingaráætlun Veiðifélags Árnesinga að öllum stórlaxi, sjötíu sentímetrar plús skuli sleppt. Það hafa verið tilmæli. Við getum séð fyrir okkur að það verði sett inn í nýja nýtingaráætlun að það sé skylda,“ sagði Helgi. Hann velti í því samhengi upp spurningunni hvort fara ætti enn neðar og miða við 65 sentímetra á öllu vatnasvæðinu. Hann hélt áfram. „Sóknin. Minnka sókn. Það eru nokkrar aðferðir til þess. Það er annaðhvort að byrja seinna. Hætta fyrr. Það getur verið varðandi netaveiðina að stytta tíma sem má leggja net. Setja netin niður seinna. Það getur líka verið að breyta veiðitíma á hverjum degi á stöng. Í dag eru það tólf tímar. Eigum við að hafa það tíu tíma? Þá má ekki byrja fyrr en klukkan átta og hætta klukkan níu. Yfir veiðitímabilið er það átta dagar, þessir tveir tímar á dag. Það er ýmislegt uppi á borðinu en við þurfum að reyna að finna aðferð sem flestir geta sæmilega sætt sig við. Þannig að það verði ekki þetta stríð. Svo er það hinn möguleikinn sem nefndur hefur verið í mín eyru. Eigum við ekki bara að banna alla veiði í eitt eða tvö ár. Ég held að við séum ekki alveg komin þangað. Reynum að finna einhverja leið þannig að allir séu sæmilega sáttir með minnkandi sókn og þetta með stórlaxinn. Ég held að við verðum að komast upp úr skotgröfunum og reyna að hugsa um þetta. Við viljum öll eiga þessi lífsins gæði hvort sem menn eru að selja veiðileyfi eða veiða sjálfir. Vatnasvæðið er svolítið sérstakt og margir utanaðkomandi sem átta sig ekki á því. Reglurnar eru þannig að hver veiðir fyrir sínu landi.“
Fundurinn var ágætlega sóttur. Heyra mátti áhyggjur af stöðu mála hjá þeim er tóku til máls. Ljósmynd/Sporðaköst
Helgi sagði að tvær deildir, Stóru Laxárdeildin og Tungufljótsdeildin hafi ákveðið að leigja út veiðiréttinn í heilu lagi. Annars staðar er það þannig að hver veiðir fyrir sínu landi og eigendur ráðstafi veiðirétti sjálfir. Helgi minnti svo á að auðvitað væru það hagsmunir þeirra sem eru efst á svæðinu að menn hagi sér vel neðarlega á svæðinu og öfugt. Svo sagði Helgi. „Ég heyri það í núverandi stjórn að við viljum reyna að ná einhverjum sáttum og grípa til aðgerða áður en við þurfum að grípa til þannig aðgerða að við fáum skipun að ofan eða við þurfum að stoppa í einhver ár. Við viljum ekki fara þangað heldur.“
Kemur til með að taka tíma
Guðni Guðbergsson tók við spurningum fundarmanna og þar var gjarnan spurt, hvað getum við gert og eða hvað eigum við að gera? Guðni benti mönnum á að lagaumhverfið væri með þeim hætti að nýting stofnanna væri á ábyrgð landeigenda. Hann sagði að þegar stofnar væru minnkandi og það þurfi greinilega að grípa til aðgerða þá liggi beinast við að draga úr sókninni og nýta öll þau hrogn sem eru til. „Því fyrr sem menn gera það og því meira, þeim mun hraðari verður uppbyggingin. Það verður þó að hafa það í huga að það kemur samt til með að taka tíma,“ sagði Guðni í einu af svörum sínum.
Hafandi hlustað á fundinn má taka þetta saman með þeim hætti að hvort sem menn flokkast sem netabændur eða stangveiðimenn þá hafa menn áhyggjur. Vissulega eru sjónarmiðin ólík og að sama skapi hagsmunirnir en minnki laxastofninn á svæðinu enn frekar líða allir. Það mátti heyra sáttatón í þeim sem báðu um orðið og þá ekki síst hjá formanni félagsins. Eina raunhæfa úrræðið er að mati þeirra sem tjáðu sig að draga úr sókn og hlífa stórlaxinum. Hvernig stjórn VÁ mun útfæra það verður áhugavert að sjá.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 108 cm | Stóra Laxá | Jón Kristinsson | 27. september 27.9. |
| 100 cm | Laxá í Dölum | Reynir Sigmundsson | 26. september 26.9. |
| 102 cm | Fossá | Theodór Ingibergsson | 18. september 18.9. |
| 102 cm | Selá í Vopnafirði | Huginn Freyr Þorsteinsson | 4. september 4.9. |
| 103 cm | Laxá í Aðaldal | Auðunn Sigurðsson | 3. september 3.9. |
| 107 cm | Laxá í Aðaldal | Nils Folmer Jorgensen | 29. ágúst 29.8. |
| 102 cm | Hofsá | Bergþór Jónsson | 25. ágúst 25.8. |
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/65/1696502.jpg)

