Uppáhaldssmákökur þjóðþekkra einstaklinga
Hver er þín uppáhaldssmákaka?
Oddgeir Einarsson, Samúel Bjarki Pétursson, Margrét Erla Maack, Hrafnkell Pálmarsson og Tinna Hrafnsdóttir eiga það sameiginlegt að eiga öll uppáhaldssmákökur. Samsett mynd
Júlía Margrét Alexandersdóttir leitaði til þekktra Íslendinga og spurði um uppáhaldssmákökurnar. Á meðan sumir elska lakkrístoppa þá vilja aðrir smákökur úr Ikea.
Heimili landsins baka helst piparkökur, en okkur finnast þær alls ekki bestar. Meirihluti viðmælenda Morgunblaðsins segir aftur á móti að sörur séu bestu smákökurnar. Þó byrjuðum við ekki að baka þær að ráði fyrr en á 10. áratugnum
Í aldir hafa konur kynnt eldhús þessa lands fyrir jólin, velt og þjappað deigi milli handanna, lært gamlar og góðar uppskriftir, tileinkað sér nýjar og jafnvel reynt að slá hver aðra út með fjölda sorta. Vissulega eiga karlar líka þarna hlut að máli en sé horft yfir tímann þá eru þeir á stangli. Þegar bakstursofn fór að verða almenn eign fólks á fyrstu áratugum 20. aldar og bökunarvörur ódýrari og aðgengilegri í verslununum fór smákökugerð að blómgast. Í dag erum við enn að baka og borða vinsælustu tegundir fyrstu alvöru ára smákökubaksturs þótt nýrri tegundir hafi rutt sér til rúms og séu að yfirtaka dunkana.
Í bókinni Bökun í heimahúsum, frá 1930, birti Helga Sigurðardóttir á þriðja tug uppskrifta að smákökum sem bakaðar voru á þeim tíma. Þeirra á meðal voru gyðingakökur, spesíur, hálfmánar, sykurkökur, vanillukransar, smjörkransar, kanellengjur, kókostoppar, möndlukökur, piparkökur, sírópskökur og hafrakökur.
Oddgeir Einarsson hæstaréttarlögmaður
Hver er eftirlætissmákakan þín?
„Lagkaka væri eftirlætissmákakan mín ef hún væri smákaka en ekki bara kaka,“ segir Oddgeir.
Margrét Erla Maack fjöllistadís
Hver er eftirlætissmákakan þín?
„Við fjölskyldan bökum alltaf amerískar súkkulaðibitakökur, yfirleitt 12-16-falda uppskrift,“ segir Margrét Erla en um 60 kökur koma úr hverri uppskrift. Á góðum degi eru þetta því 960 stykki.
„Pabbi minn er verkstjórinn og svo koma öll frændsystkinin og hjálpa til og fá svo kökur með sér heim. Svo vinnur maður sig upp í fjölskyldunni. Ég er til dæmis nýfarin að mega taka plöturnar úr ofninum, það mátti ég ekki fyrir fimm árum. Og ég stefni að því að vera á hrærivélinni innan þriggja ára. Þetta er ógeðslega gaman og við erum svona 11-12 manns heima í eldhúsinu hjá foreldrum mínum.“
Tinna Hrafnsdóttir leikkona og leikstjóri
Hver er eftirlætissmákakan þín?
„Ég verð að droppa bombu hérna. Ikea-kökurnar! Þessar með súkkulaðibitunum,“ segir Tinna.
Hjónin Hrafnkell Pálmarsson tónlistarmaður og fasteignasali og Jóna Ellen Valdimarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnkell Pálmarsson tónlistarmaður og fasteignasali
Hver er eftirlætissmákakan þín?
„Það er erfitt að velja milli lakkrístoppanna og smartís-kakanna hennar mömmu. Svo er eiginlega uppáhaldið mitt núna Stokkhólmskökurnar hennar Jónu minnar.“
Samúel Bjarki Pétursson leikstjóri og framleiðandi
Hver er eftirlætissmákakan þín?
„Þetta er pínu flókið. Úr æsku er það klárlega súkkulaðidropakaka,“ segir Samúel og bætir við:
„En í dag er ég mikið fyrir sörur og eiginkona mín býr þær til með Lindor-fylllingu. Þá eru mjúkir kókostoppar með súkkulaðibotn líka í uppáhaldi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




