Tyrkland - Ísland, staðan er 78:69

Tyrkland og Ísland mætast í undankeppni EM karla í körfubolta í Istanbúl klukkan 16.

Ísland og Tyrkland mætast í dag.

Ísland og Tyrkland mætast í dag. mbl.is/Eyþór

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta á ekki lengur möguleika á að komast á lokamót HM eftir tap gegn Tyrklandi, 101:83, í undankeppninni í Istanbúl í dag.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta og var staðan 8:8 þegar hann var um það bil hálfnaður. Það jafnvægi hélt áfram og var Ísland með afar naumt forskot eftir leikhlutann, 24:23.

Ísland byrjaði annan leikhluta mjög vel og komst í 28:23 í upphafi hans. Íslenska liðið var með naumt forskot stærstan hluta leikhlutans en Tyrkir komust þó einnig yfir þess á milli. Ísland lauk hins vegar leikhlutanum betur og var því yfir í hálfleik, 46:43.

Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur í íslenska liðinu í fyrsta leikhluta með 13 stig. Hilmar Smári Henningsson gerði átta og þeir Kristinn Pálsson og Martin Hermannsson sjö hvor.

Tyrkneska liðið byrjaði töluvert betur í þriðja leikhluta og náði sjö stiga forskot um hann miðjan, 61:54. Íslenska liðið náði ekki að jafna metin það sem eftir lifði leikhlutans og munaði sex stigum fyrir fjórða leikhlutann, 73:67.

Tyrkland byrjaði einnig betur í fjórða leikhluta og náði tíu stiga forskot snemma í leikhlutanum, 83:73.

Tyrkir voru svo mun sterkari í lokin og unnu öruggan sigur þegar uppi var staðið.

Elvar Már Friðriksson var stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig, Martin og Tryggvi gerðu 14 hvor og Kristinn 12.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读