Andrea fann ástina í Danmörku og dýrkar lífið þar
„Ég elska að búa í Árósum og gæti eiginlega ekki hugsað mér að búa annars staðar“
Andrea Victorsdóttir býr í Danmörku ásamt maka sínum og barni. Hér er hún með einkasyninum Benoný Tindi. Ljósmynd/Aðsend
Andrea Victorsdóttir er 28 ára sjúkraþjálfari og meistaranemi sem er búsett í Árósum í Danmörku. Hún hefur búið meira og minna í þar í landi síðan hún kláraði menntaskóla en upprunalega fór hún þangað til að hafa gaman og kynnast fólki.
Andrea kann vel við sig í Danmörku en hún kemur þó reglulega heim en hún er fædd og uppalin á Selfossi.
„Ég er í mastersnámi í íþrótta- og lýðheilsufræði í SDU Odense eða Háskólanum í Suður-Danmörku. Ég er þó í fæðingarorlofi í skólanum og byrja aftur að skrifa mastersritgerðina mína í febrúar og stefni á útskrift í júní 2027,“ segir Andrea sem eignaðist sitt fyrsta barn í maí.
„Ég flutti fyrst til Danmerkur árið 2019. Þá fór ég í Íþróttalýðháskólann í Sønderborg og bjó þar í eiginlega eitt ár, frá janúar og flutti heim til Íslands í desember sama ár. Svo flutti ég aftur til Danmerkur, nánar tiltekið Esbjerg, í ágúst 2020 til þess að fara að læra sjúkraþjálfun. Ég bjó í Esbjerg í þrjú ár.“
Andrea er vinsæl á félagsmiðlum og sérstaklega TikTok, þar sem hún setur inn myndbönd af hversdagsleikanum í Árósum. Margir hverjir sem fylgja henni þar eru farnir að kannast við kærasta Andreu, hinn danska Mark Sveinsson Deding, en þau kynntust í sjúkraþjálfaranáminu.
„Mark var einni önn á undan mér, í sama námi. Á þessum tíma voru annars árs nemar duglegir að hjálpa fyrsta árs nemunum með námið og bara að gera eitthvað skemmtilegt saman. Við kynntumst því bara frekar fljótlega eftir að ég byrjaði að læra,“ segir hún.
Hvernig er að búa í Árósum?
„Ég elska að búa í Árósum og gæti eiginlega ekki hugsað mér að búa annars staðar í Danmörku. Þetta er fullkomin stærð á borg, það er nóg að gera og mikið stúdentalíf. Það er hellingur af Íslendingum, sem er mjög mikilvægt fyrir mig því ég elska vinkonur mínar og að eignast nýjar vinkonur. Það er enn alltaf jafn erfitt þegar þær flytja aftur til Íslands. Danirnir eru skemmtilegir enn það jafnast ekkert á við íslenskar vinkonur.“
Nóg um að vera í Árósum
Andrea kann vel við sig í Danmörku og segir að búsetunni fylgi mörg þægindi.
„Lífið er svo rólegt og þægilegt hérna, ég þarf ekki að eiga bíl, get hjólað út um allt og samgöngurnar eru geggjaðar. Það er um einn og hálfur tími að fara á milli Árósa og Óðinsvéa þar sem háskólinn minn er, en það er svo auðvelt að taka lestina á milli og mér finnst það vera lítið mál. Svo er sumarið mjög langt sem ég elska, það er mikið hægt að vera úti, mikil kaffihúsamenning og mér finnst mjög gaman að fara á kaffihús með vinkonum mínum.“
Hvað tók þig langan tíma að ná tökum á dönskunni?
„Það tók mig þrjá mánuði að byrja að skilja hana og eftir sex mánuði var ég byrjuð að tala hana, reyndar mjög bjagaða. Þar sem ég var í lýðháskóla hjálpaði það svo mikið til að ég var í kringum Dani allan daginn og allt í skólanum var á dönsku,“ segir hún.
Litla fjölskyldan unir sér vel í Árósum en þeim finnst líka æðislegt að heimsækja fólkið sitt á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend
Gaman að rölta um með barnavagn
Hvernig er að veraí fæðingarorlofi í Danmörku?
„Ég átti æðislega meðgöngu og allt gekk mjög vel. Það var vel hugsað um mig allan tímann og passað upp á að allt væri í toppstandi. Það er auðvitað líka mjög þægilegt að allar læknisheimsóknirnar og meðgöngueftirlitið hér er ókeypis.
Orlofið er líka búið að vera yndislegt, ég hef nóg að gera og er alltaf eitthvað úti að stússast. Ég dýrka að fara niður í bæ, hitta vinkonur mínar og fara á kaffihús. Ég labba líka almennt mjög mikið og fer mikið í göngutúra og það er bara aðeins skemmtilegra með barnavagn. Veðrið er líka búið að vera æði síðan hann fæddist, svo að ég er búin að vera dugleg að gera eitthvað úti og finna mér eitthvað að gera.“
Sjáið þið fyrir ykkur að búa úti í framtíðinni?
„Já, planið er að búa áfram í Danmörku en við erum opin fyrir öllu. Okkur langar mikið að prófa að búa á Íslandi í smá stund og leyfa syni okkar að upplifa lífið þar. Svo væri líka frábært fyrir Mark að prófa það og ná betri tökum á íslenskunni.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú kemur heim til Íslands?
„Það er alltaf Huppuís fyrsta kvöldið. Svo við fyrsta tækifæri fer ég í sund og í heimsókn til ömmu og afa,“ segir Andrea.
Hægt er að fylgjast með fjölskyldunni á TikTok-aðgangnum andreavictors. Þar sýnir Andrea oft dag í lífi þeirra í orlofinu og ýmsa hluti sem eru frábrugðnir Íslandi. Ljósmynd/Aðsend
Hvað tekur við hjá þér eftir fæðingarorlof?
„Ég stefni á að klára meistararitgerðina mína í júní og svo ætla ég að fara á fullt að finna mér vinnu hér úti. Ég hef mikinn áhuga á barnasjúkraþjálfun, svo ég er að krossa fingur fyrir að ég fái vinnu við það.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



