Biskup Íslands opnar fyrsta glugga jóladagatalsins
Í samstarfi Árvakurs og Þjóðkirkjunnar birtir mbl.is stutta jólahugvekju á hverjum degi á aðventunni.
Aðventan er tími vonar og tilhlökkunar. Í samstarfi Árvakurs og Þjóðkirkjunnar birtir mbl.is stutta jólahugvekju á hverjum degi á aðventunni.
Með hverju myndbandi opnast nýr gluggi í jóladagatali Þjóðkirkjunnar, sem í ár ber yfirskriftina „Hátíð fer að höndum ein“.
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, opnar fyrsta gluggann í jóladagatali Þjóðkirkjunnar. Í hugvekjunni kveikir hún á fyrsta aðventukertinu, spádómskertinu, og rifjar upp hvernig spámenn Gamla testamentisins boðuðu komu Krists í heiminn. Í framhaldinu veltir hún upp spurningunni um hverjir séu spámenn okkar tíma.
Í hugvekjunum sem munu birtast á aðventunni munu sjálfboðaliðar, starfsfólk kirkna og aðrir sem taka þátt í kirkjustarfi deila hugleiðingum sínum um boðskap aðventunnar og gefa landsmönnum tilefni til að staldra við í aðdraganda jólanna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗