Íslenskir afbrotamenn hafa kvartað

„Það fór alveg nálægt því að menn kvörtuðu yfir að þetta væri ekki gott og að þetta væri að breyta þessum heimi,“ segir Finnbogi Jónasson, deild…

Íslenskum afbrotamönnum hefur á stundum þótt nóg um hvað þeir erlendu hafa haft sig í frammi hérlendis við að sölsa undir sig markaði eða hluta af mörkuðum. mbl.is/Þorgeir

„Maður hefur alveg heyrt það,“ segir Finnbogi Jónasson, deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, við Morgunblaðið í viðtali um íslenska undirheima og skipulagða brotastarfsemi þar sem hann svarar fjölda spurninga, en þessi snerist um hvort íslenskir afbrotamenn hefðu látið örla á óánægju sinni í garð erlendra í samtölum við lögreglu um dagana.

„Það fór alveg nálægt því að menn kvörtuðu yfir að þetta væri ekki gott og að þetta væri að breyta þessum heimi. Auðvitað breytir það heilmiklu, við sjáum alveg mun á stöðunni núna og fyrir 20 árum sem er náttúrulega til komið vegna þess að stærri skipulagðir brotahópar eru að koma inn, menn sem standa fjær samfélaginu,“ segir Finnbogi við Morgunblaðið.

Lestu viðtalið í heild sinni:

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读