„Allt sett á fullt“ hjá Gæslunni
„Það sýndi sig á miðvikudaginn að það er full þörf á því að hafa björgunarþyrlur með þessa getu,“ segir Ásgeir og vísar til björgunaraðgerðanna …
Maður hangir í vír undir TF-GRO, björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar. Á Akureyrarflugvelli á að koma upp fastri starfsstöð fyrir fjórðu þyrlu Gæslunnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan var þegar farin að undirbúa komu fjórðu björgunarþyrlunnar þegar ríkisstjórnin ákvað í gær að flýta vinnu við að útvega hana. Nú er hafin leit að þyrlunni, sem verður staðsett á Akureyri, og þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir slíkum vélum á heimsvísu ríkir bjartsýni hjá Gæslunni.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við mbl.is að Gæslan fagni ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Stofnunin hafi átt mjög góð samtöl við dómsmálaráðuneytið um verkefnið undanfarna mánuði og hafið undirbúning í samráði við það.
Um leið og ákvörðunin lá fyrir í gær hafi verið „allt sett á fullt“ og farið að kanna hvaða vélar gætu verið í boði.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir Gæsluna bjartsýna á að finna hentuga björgunarþyrlu þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir slíkum vélum á heimsvísu. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Bjartsýnir þrátt fyrir mikla eftirspurn
„Þyrlur eru þannig tæki að þær liggja ekki á lausu,“ segir Ásgeir og tekur undir orð Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að þyrlur séu ekki hilluvara.
Um sérsmíðuð tæki sé að ræða og eftirspurn eftir þeim sé meiri en áður. Engu að síður séu menn hjá Gæslunni bjartsýnir á að einhverjir kostir séu í stöðunni. Nú þurfi að kortleggja þá og kanna með hvaða hætti hægt sé að koma verkefninu í höfn.
Ásgeir telur raunhæft að eitt til tvö ár geti liðið þar til fjórða þyrlan verður komin til landsins og tilbúin í útköll, þótt óskandi væri að það tæki skemmri tíma.
Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins í gær kom fram að gera mætti ráð fyrir að ferlið tæki eitt til þrjú ár. Ráðuneytið hefur jafnframt beðið Gæsluna að kanna hvort hægt sé að fá aðra þyrlu til bráðabirgða.
„Það sýndi sig á miðvikudaginn“
Spurður hvort til greina komi að bæta minni og einfaldari þyrlum við flota Gæslunnar til að sinna hluta útkalla segir Ásgeir stofnunina hafa komist að þeirri niðurstöðu að hagkvæmast sé að flotinn samanstandi af sams konar þyrlum.
Um sé að ræða stórar og öflugar björgunarþyrlur sem geti brugðist við í öllum veðrum.
„Það sýndi sig á miðvikudaginn að það er full þörf á því að hafa björgunarþyrlur með þessa getu,“ segir Ásgeir og vísar til björgunaraðgerðanna vegna sjóslyssins í vikunni.
Gert er ráð fyrir að fjórða þyrlan verði tekin á leigu, líkt og þær þrjár sem Gæslan hefur nú.
Óska eftir 600 milljónum til að hefja framkvæmdir
Samhliða leitinni að fjórðu þyrlunni þarf að byggja upp aðstöðu á Akureyri og fjölga þyrluáhöfnum Gæslunnar úr sex í sjö. Ásgeir segir Gæsluna vonast til þess að sú vinna gangi eins hratt og kostur er.
Eins og greint var frá á mbl.is í gær stendur ekki til að bíða með uppbyggingu aðstöðunnar þar til þyrla er fundin. Óskað verður eftir 600 milljóna króna framlagi við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins til að hefja framkvæmdir við flugskýli á Akureyri sem fyrst.
Í bráðabirgðamati sem dómsmálaráðuneytið kynnti þingnefnd í júní var sama fjárhæð áætluð í heildareinskiptiskostnað við að koma starfsstöðinni á fót. Stærsti kostnaðarliðurinn var bygging flugskýlisins en einnig var gert ráð fyrir þjálfun tveggja flugmanna, uppbyggingu viðhaldsaðstöðu og viðbótarbúnaði.
Áætlaður heildarkostnaður við byggingu flugskýlisins kemur ekki fram í tilkynningu ráðuneytisins frá því í gær.
Ásgeir segir Gæsluna gera ráð fyrir um 600 milljóna króna einskiptiskostnaði vegna flugskýlis og undirbúnings. Árlegur kostnaður vegna leigu fjórðu þyrlunnar, reksturs starfsstöðvarinnar á Akureyri og viðbótar sjöundu áhafnarinnar sé metinn á samtals 1,1 til 1,3 milljarða króna.
Kostnaðurinn verði inni í næstu fjármálaáætlun
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði í samtali við mbl.is í gær að fullkomlega mögulegt væri að fjármagna fjölgun þyrlna Landhelgisgæslunnar innan næstu fjármálaáætlunar.
Ríkisstjórnin hefði áður rætt að af þessu yrði en á fundi hennar í gær hefði verið tekin ákvörðun um að flýta ferlinu. Gert væri ráð fyrir að kostnaður vegna þyrlunnar yrði tekinn inn í fjármálaáætlunina sem kynnt verður í febrúar.
Gæslan lagði til árs tilraun árið 2023
Landhelgisgæslan hefur um árabil bent á kosti þess að koma upp fastri starfsstöð fyrir björgunarþyrlu á Akureyri.
Haustið 2023 lagði Gæslan til í umsögn til Alþingis að ein af þyrlum hennar yrði gerð út frá Akureyri í eitt ár í tilraunaskyni, að því gefnu að aðstaða væri komin upp og búið væri að fjármagna og þjálfa sjöundu áhöfnina.
Auglýstu eftir flugmönnum en fjármagnið fékkst ekki
Gæslan auglýsti eftir flugmönnum vegna verkefnisins en ekkert varð af ráðningunum á þeim tíma þar sem fjármagn fékkst ekki, að því er RÚV greindi frá í maí 2024.
Í umsögn Gæslunnar í febrúar á þessu ári var hins vegar lögð áhersla á að fjölga þyrfti bæði þyrlum og áhöfnum. Gæslan vísaði til fjölgunar útkalla og verkefna og taldi óskynsamlegt að færa eina af þyrlunum norður án þess að fjölga í flotanum og bæta við áhöfn.
Í sömu umsögn kom fram að Gæslan hefði haft fulla viðbragðsgetu, það er tvær björgunarþyrlur og tvær áhafnir til taks, um 61% ársins 2025.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, ræddi stöðu þyrlumála stofnunarinnar ítarlega í Spursmálum í síðustu viku.
Með tilkomu fjórðu þyrlunnar og sjöundu áhafnarinnar má gera ráð fyrir að tvær björgunarþyrlur verði til taks 95 til 98% ársins, samanborið við um 60% nú, samkvæmt tilkynningu dómsmálaráðuneytisins í gær.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
