Þjónusta Heilbrigðiseftirlitsins skerðist
Fyrirsjáanlegt er að talsvert rof verði á þjónustu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til áramóta og að líklega verði enn meira rof þaðan í frá á …
Verkefni eins og matarsýkingar og alvarleg mengunaróhöpp verða áfram í forgangi eftirlitsins. mbl.is/Ólafur Árdal
Fyrirsjáanlegt er að talsvert rof verði á þjónustu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til áramóta og að líklega verði enn meira rof þaðan í frá á þeirri þjónustu sem þeim ríkisstofnunum er ætlað að veita sem taka eiga við verkefnum Heilbrigðiseftirlitsins frá og með þeim tíma.
Þetta segir Tómas G. Gíslason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, í minnisblaði sem lagt var fyrir heilbrigðisnefnd borgarinnar fyrr í þessari viku.
Frá sveitarfélögum til ríkisins
Forsaga málsins er sú að Alþingi hefur ákveðið, að tillögu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra, að færa heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga frá sveitarfélögum til ríkisins frá og með næstu áramótum. Verður allt heilbrigðiseftirlit þaðan í frá í höndum tveggja ríkisstofnana, Umhverfis- og orkustofnunar og hinnar nýju Stofnunar atvinnuveganna.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗