Vilja styrkja samfélög gegn fjölþáttaógnum

Um var að ræða annan fund nefndarinnar í formennskutíð Íslands en íslensk stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á áfallaþol samfélaga í formennskut…

Embættismannanefnd Eystrasaltsráðsins.

Embættismannanefnd Eystrasaltsráðsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Áfallaþol samfélaga, fjölþáttaógnir og svæðisbundinn viðbúnaður voru meðal helstu viðfangsefna á fundi embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins sem fram fór í Stokkhólmi 19. og 20. nóvember.

Um var að ræða annan fund nefndarinnar í formennskutíð Íslands en íslensk stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á áfallaþol samfélaga í formennskutíð sinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Í tengslum við fundinn stóð Ísland fyrir sérstöku málþingi um fjölþáttaógnir, svæðisbundinn viðbúnað og áfallaþol samfélaga.

Efla samstarf ríkjanna

Ísland leitast við að efla hagnýtt samstarf aðildarríkjanna í samræmi við langtímaforgangsmál ráðsins um öryggi, sjálfbærni og samheldni svæðisins.

Fulltrúar allra aðildarríkja ráðsins sóttu fundinn, auk fulltrúa Evrópusambandsins og starfsmanna ráðsins.

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992 en þar eiga sæti Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin þrjú, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið.

Á vettvangi ráðsins fer meðal annars fram samstarf um almannavarnir, barnavernd og aðgerðir gegn mansali.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读