Spilaði fyrsta leikinn þrátt fyrir veikindi
Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leiden í Hollandi, lét ælupest á leikdegi ekki koma í veg fyrir að hún tæki þátt í sínum fyrsta leik…
Hanna Þráinsdóttir, körfuknattleikskona hjá Leiden í Hollandi, lét ælupest á leikdegi ekki koma í veg fyrir að hún tæki þátt í sínum fyrsta leik með liðinu.
„Ég fékk bara ælupest á leikdegi. Ég endaði á að taka einhverjar pillur og spila leikinn en það var bara þetta eina skipti,“ sagði Hanna í samtali við Morgunblaðið.
Hanna gekk til liðs við Leiden frá KR og segir fyrstu mánuðina í Hollandi hafa gengið vel. Þegar viðtalið var tekið hafði liðið unnið fjóra leiki og tapað fjórum.
„Við byrjuðum vel og unnum fyrsta leikinn. Svo kom smá niðurtúr og við töpuðum þremur í röð. Nú erum við aftur komnar á sigurbraut og á mjög gott ról. Við vonumst til að halda því áfram.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/47/1694767.jpg)