Afar grátlegt fyrir íslensku strákana
Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. nóvember 2026 19:49
Daníel Tristan Guðjohnsen. Mynd: DV/KSJ
Íslenska U-21 árs landslið karla heimsótti Grikki í seinni leik umspils um sæti á EM næsta sumar í kvöld.
Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli hér heima. Þar var Ísland miklu betri aðilinn en gestirnir jöfnuðu í blálokin.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom íslenska liðinu yfir með frábæru marki á 72. mínútu. Það stefndi í íslenskan sigur en í uppbótartíma jöfnuðu Grikkir, rétt eins og í fyrri leiknum.
Grátlegt fyrir Ísland en þá var farið í framlengingu. Ekkert var skorað þar og því tók vítaspyrnukeppni við.
Þar skoraði Grikkland úr öllum fimm spyrnum en Viktor Bjarki Daðason klikkaði fyrir Ísland.
Íslensku strákarnir verða því ekki með í lokakeppni EM næsta sumar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗