Grikkland U21 - Ísland U21, staðan er 6:5

Ísland verður ekki á meðal liða á Evrópumóti U21 árs karlalandsliða í fótbolta í Albaníu og Serbíu næsta sumar eftir tap fyrir Grikklandi í vítaspyrnukeppni í Aþenu í kvöld.

Venjulegum leiktíma lauk með 1:1-jafntefli en liðin skildu einnig jöfn, 1:1, á Þróttarvelli fyrir helgi. Grikkland vann síðan vítakeppnina 5:4.

Daníel Tristan Guðjohnsen kom Íslandi yfir á 72. mínútu leiksins með bylmingsskoti utan teigs sem hafnaði í fjærhorninu, 1:0.

Daníel Tristan Guðjohnsen fagnar marki sínu.

Daníel Tristan Guðjohnsen fagnar marki sínu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Ísland náði að halda þeirri forystu út þar til í blálokin þegar hægri bakvörðurinn Konstantinos Kostoulas jafnaði metin með skalla af stuttu færi, 1:1.

Í framlengingunni voru Íslendingar hættulegri en Ágúst Orri Þorsteinsson setti boltann í stöngina. Hann barst síðan til Hauks Andra Haraldssonar sem var í dauðafæri en Nikolaos Botis varði glæsilega frá honum.

Viktor Bjarki Daðason var eini leikmaðurinn sem klúðraði vítaspyrnu í vítakeppninni en hann tók þá fyrstu. Botis las framherjinn og varði frá honum. 

Grikkir skoruðu úr öllum sínum vítum og Christos Mouzakitis tryggði þeim farseðilinn í lokakeppnina með því að skora úr fimmta vítinu.

Daníel Tristan Guðjohnsen með boltann í leiknum.

Daníel Tristan Guðjohnsen með boltann í leiknum. Ljósmynd/Alex Nicodim

Freyr Sigurðsson í baráttunni í kvöld.

Freyr Sigurðsson í baráttunni í kvöld. Ljósmynd/Alex Nicodim

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅