Snýr sér að skartgripahönnun

Britney Spears á viðburði árið 2019.

Britney Spears á viðburði árið 2019. AFP/Valerie Macon

Bandaríska söngkonan Britney Spears vinnur að skartgripalínu sem ber nafnið B Tiny. Að sögn heimildarmanna fjölmiðla vestanhafs er von á fyrstu skartgripunum á næstu mánuðum. Búist er við að nánar verði greint frá línunni á næstu vikum.

Spears hefur sjálf haft umsjón með hönnuninni og fer enginn skartgripur í framleiðslu án samþykkis hennar.

Gripi línunnar má að sögn heimildarmanna People helst sjá fyrir sér á tónlistarhátíðum og eru bleikir og blágrænir litir áberandi.

Einn heimildarmannanna segir að skartið gefi góða mynd af stíl söngkonunnar. Hann líkir gripunum við það sem gæti orðið til ef textarnir sem Spears skrifar við myndir sínar á Instagram tækju á sig mynd skartgripa.

Þeir eigi jafnt við á tónleikum og á stefnumóti eða kvöldi með vinkonunum.

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅