Tár á hvarmi og Aron Einar heiðraður

Helgi Fannar Sigurðsson

Mánudaginn 16. nóvember 2026 19:37

Aron Einar heiðraður fyrir leik. Mynd: DV/KSJ

Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta landsleik í kvöld, þegar Ísland vann Lúxemborg 3-0 í Þjóðadeildinni. 

Aron Einar var að spila sinn 113. landsleik og jafnaði þar með landsleikjametið og kórónaði stórkostlegan feril, en hann hefur spilað með A-landsliðinu frá 2008. Deilir hann leikjametinu nú með Birki Bjarnasyni.

Aron, sem leiddi Ísland á EM 2016 og HM 2018, var heiðraður fyrir leik fyrir framan stuðningsmenn Íslands og eftir leik brutust út miklar tilfinningar, eins og við var að búast.

Mátti sjá tár á hvarmi, ekki aðeins hjá Aroni heldur mörgum liðsfélögum hans einnig. Tók hann Víkingaklappið og var tolleraður einnig. 

Falleg stund í Laugardalnum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅