Gylfi með tárin í augunum í viðtali - „Veit að minn tími mun koma“

Helgi Fannar Sigurðsson

Mánudaginn 16. nóvember 2026 19:23

Gylfi Þór Sigurðsson Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson var klökkur þegar hann ræddi Aron Einar Gunnarsson eftir síðasta landsleik þess síðarnefnda í kvöld. 

Ísland vann Lúxemborg 3-0. Aron Einar var að spila sinn 113. landsleik og jafnaði þar með landsleikjametið og kórónaði stórkostlegan feril. Deilir hann metinu nú með Birki Bjarnasyni.

„Þetta var bara erfitt sko. Við erum búnir að vera saman síðan í U-17 ára landsliðinu, 16 ár í A-landsliðinu. Það er bara erfitt að fara ekki að gráta núna,“ sagði Gylfi við Sýn Sport eftir leik.

„Maður á eftir að sakna ferðalaganna, sakna þess að vera á hóteli með honum, vera í tíu daga saman og alls í kringum landsliðiðið.

Það er frábært að geta eytt síðustu dögunum hans sem herbegisfélagi. Góður endir á stórkostlegum ferli. Hann var gríðarlega mikilvægur innan sem utan vallar í þeim árangri sem við höfum náð, leiðtoginn og límið í liðinu,“ sagði Gylfi enn fremur.

Sjálfur er hann ekki hættur. „Ekki enn, ég hef enn gaman að þessu. En ég veit að minn tími mun koma líka, einhvern tímann verður maður hinum megin við borðið.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅