Enn einn sigur Eistlands
Eistland vann 2:1-sigur á Búlgaríu í fjórða riðli C-deildar Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Tallinn í Eistlandi í kvöld.
Eistar hafna í öðru sæti riðilsins með tólf stig og fara í umspil um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar. Ísland vann riðilinn með 14 stig, Búlgaría hafnaði í þriðja með fjögur og Lúxemborg neðst með þrjú.
Patrik Kristal og Kevor Paulmets skoruðu mörk Eistlands en Svetoslav Kovachev jafnaði metin fyrir Búlgaríu á milli marka Eista.
Karel Mustmaa í liði Eistlands fékk síðan tvö gul spjöld og þar með rautt með stuttu millibili undir lok leiks.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗