Eiður Smári um kvöldið í Laugardalnum - „Það er bara cool að gráta“
433
Mánudaginn 16. nóvember 2026 19:15
Aron Einar og Eiður á EM 2016 Getty Images
Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta landsleik fyrir Ísland í kvöld þegar liðið mætti Lúxemborg á Laugardalsvelli. Tilfinningarnar voru miklar þegar einn merkasti fyrirliði íslenskrar knattspyrnusögu kvaddi landsliðið.
Aron byrjaði á varamannabekknum en kom inn á í síðari hálfleik þegar Ísland var komið í 3-0 forystu.
Með því jafnaði hann landsleikjamet Birkis Bjarnasonar, 113 leiki, og gerði stundina enn sérstakari með því að klæðast treyju númer 14, sama númeri og hann bar í sínum fyrsta landsleik.
Eftir leikinn tók við tilfinningaþrungin kveðjustund. Aron tók sitt síðasta HÚH með stuðningsmönnum áður en liðsfélagar hans tolleruðu hann.
Eiður Smári Guðjohnsen var greinilega hrærður þegar hann ræddi stundina í útsendingu SÝN.
„Það er bara cool að gráta. Þetta hellist yfir mann og allt í einu er þessi kafli á enda,“ sagði Eiður.
Hann hrósaði jafnframt Aroni fyrir leiðtogahlutverkið sem hann hefur gegnt í íslenska landsliðinu um árabil.
„Þegar við förum og gúgglum fyrirliða þá er hann á mynd ásamt stórum og merkum mönnum.“
Aron Einar kveður íslenska landsliðið eftir átján ára feril þar sem hann leiddi þjóðina meðal annars á EM 2016 og HM 2018.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗