Veittust að manni og skemmdu bifreið

Nokkuð var um ölvun í Reykjavík þennan mánudaginn, grunaður þjófur lumaði á eggvopni og tveir menn veittust að öðrum í Kópavogi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var óskað tíu sinnum vegna ölvaðra einstaklinga, einstaklinga með uppsteyt eða óvelkominna á tímabilinu frá klukkan fimm í morgun til jafnlengdar síðdegis, eftir því sem fram kemur í yfirliti embættisins. Enginn gistir þó fangageymslur eins og er.

Alls hefur lögregla skráð 81 mál í kerfi sínu umrætt tímabil.

Maður, sem lögregla hafði afskipti af vegna gruns um eignaspjöll og brot gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur, reyndist eftirlýstur þegar honum var flett upp í kerfi lögreglu. Var hann látinn laus að skýrslutöku lokinni.

Aðstoðar lögreglu var óskað vegna gruns um þjófnað og reyndist grunaði hafa eggvopn í fórum sínum. Var hann einnig látinn laus eftir skýrslutöku.

Undir áhrifum lyfja með falsað skírteini

Framangreind mál komu öll upp í umdæmi lögreglustöðvar eitt við Hlemm, en á vettvangi lögreglustöðvar tvö í Kópavogi óskaði maður eftir aðstoð og kvað tvo aðra hafa veist að sér með ofbeldi auk þess sem þeir hafi unnið skemmdir á bifreið hans. Liggur einn undir grun um rán og málið í rannsókn.

Í Hafnarfirði sinnti lögregla almennu eftirliti í friði og spekt, en í umdæmi stöðvar fjögur í Árbæ, Grafarvogi og nærsveitum var lögregla kölluð til vegna tveggja umferðarslysa þar sem minni háttar áverkar hlutust af.

Þar var ökumaður bifreiðar einnig stöðvaður við almennt eftirlit og kviknaði grunur um að ástand hans við aksturinn væri ekki í samræmi við lög. Er sá grunaður um akstur undir áhrifum fíknilyfja auk þess að framvísa fölsuðu ökuskírteini. Var hann laus að lokinni blóðsýnatöku.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅