Kristrún segir nei við hagspeki stjórnarandstöðunnar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eyþór

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafnar því að taka upp það sem hún kallar hagspeki stjórnarandstöðunnar: að draga úr tekjum ríkisins, auka útgjöld og auka hallann.

Ríkisstjórnin muni halda áfram á sömu braut í ríkisfjármálum og ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga.

Þetta kom fram í svörum hennar við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Hann spurði hvort ríkisstjórnin hygðist endurskoða efnahagsstefnu sína, fjárlagafrumvarpið og samgönguáætlun í ljósi þróunar efnahagsmála.

„Ef spurningin til mín er sú hvort hér eigi að taka upp hagspeki stjórnarandstöðunnar sem felur í sér að gera allt fyrir alla, að rýra tekjur, að auka útgjöld, að auka hallann, að auka vaxtaútgjöld, þá er svarið nei,“ sagði Kristrún.

Hún bætti við að ríkisstjórnin myndi standast það sem hún kallaði óábyrgan þrýsting í þingsal.

„Þá er augljóst að við munum halda áfram á þessari braut. Það liggur alveg fyrir.“

Gagnrýnir skatta- og gjaldahækkanir

Sigmundur Davíð sagði stjórn efnahagsmála hafa valdið vonbrigðum. Atvinnuleysi ykist og verðbólga væri áfram há. Hann taldi þróunina að miklu leyti afleiðingu af stefnu ríkisstjórnarinnar.

Hann gagnrýndi sérstaklega að ríkisstjórnin reyndi að ná tökum á verðbólgu og jafnvægi í ríkisfjármálum með skatta- og gjaldahækkunum á almenning. Aðgerðirnar hefðu verið til þess fallnar að auka á vandann í stað þess að draga úr honum.

Sigmundur vísaði jafnframt til þess að Ingvar Þóroddsson hefði yfirgefið stjórnarliðið eftir að hafa varað við stefnunni. Hann spurði hvort ríkisstjórnin hygðist endurskoða nálgun sína og orðaði spurninguna að lokum svo:

„Er einhver von til þess að hæstvirt ríkisstjórn láti af dáraskap sínum við stjórn efnahagsmála á Íslandi?“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Eyþór

Rekur þriðjung verðbólgunnar til olíuverðshækkana

Kristrún svaraði því að stór hluti verðbólgunnar stafaði af ytri áhrifum. Um þriðjung hennar mætti rekja til olíuverðshækkana vegna aðstæðna sem íslensk stjórnvöld hefðu enga stjórn á. Hún kvaðst vonast til að úr þeim áhrifum drægi á komandi vikum.

Hún sagði ríkisstjórnina stefna að því að ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga í fyrsta sinn í tæpan áratug. Það væri besta einstaka leið ríkisins til að leggja sitt af mörkum og hætta að kynda undir verðbólgu.

Útgjöld samkvæmt fjárlagafrumvarpinu næmu um 30% af landsframleiðslu og hlutfallið væri með því lægsta sem sést hefði í áratug.

Vísar til vaxtakostnaðar vegna hallareksturs

Kristrún gagnrýndi fyrri stjórnarmeirihluta, meðal annars Sjálfstæðisflokkinn, fyrir hallarekstur. Vaxtagjöld ríkisins næmu nú 168 milljörðum króna á ári, eða um hálfum milljarði á dag, og rakti hún þann kostnað til hallareksturs fyrri ára.

„Hér kemur fólk upp og gerir ekki annað en að reyna að auka útgjöld, falla frá tekjum, auka hallareksturinn, auka vaxtakostnaðinn, auka vaxtagjöldin og gera það að verkum að við lendum í sama spíral og við vorum í í mörg, mörg ár,“ sagði hún.

Ríkisstjórnin væri reiðubúin að taka erfiðar ákvarðanir og stæði við það sem hún hefði sagt.

„Við munum klára hallalaus fjárlög. Það er forsenda þess að við munum sjá þennan vaxtakostnað falla.“

Segir erfiðar ákvarðanir verða að vera réttar

Í síðari ræðu sinni sagði Sigmundur Davíð svar forsætisráðherra ekki draga úr áhyggjum sínum. Ríkisstjórnin hygðist halda áfram með meira af því sama í von um að niðurstaðan yrði önnur.

Hann lýsti einnig áhyggjum af því að stefnan myndi áfram bitna sérstaklega á landsbyggðinni, meðal annars Norðausturkjördæmi. Í því samhengi nefndi hann það sem hann kallaði áformaðan „Bláskógaskatt“.

Sigmundur spurði aftur hvort ríkisstjórnin væri tilbúin að endurskoða stefnu sína með hliðsjón af þróun og aðstæðum.

„Það hefur ekkert vægi, ekkert gildi að taka erfiðar ákvarðanir ef þær ákvarðanir eru allar rangar,“ sagði hann.

Kristrún ítrekaði að ríkisstjórnin myndi standa við stjórnarsáttmálann og loforð sín.

„Það liggur alveg fyrir að eitt stærsta einstaka loforðið sem við verðum að standa undir er að hætta að kynda undir verðbólgu með óábyrgum ríkisfjármálum.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅