Inga: Tölueinkunnir aðeins fyrsta skrefið

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir fyrirhugaða upptöku tölueinkunna við lok 10. bekkjar næsta vor vera fyrsta skrefið í víðtækari breytingum á aðalnámskrá grunnskóla.

Markmið hennar sé að taka upp einkunnakvarðann 1–10 og að breytingarnar nái að lokum til allra bekkja grunnskóla.

Hún hafnar því að breytingarnar auki mismunun meðal nemenda og segir þeim ætlað að gera námsmat skýrara, gagnsærra og auðskiljanlegra.

Þetta kom fram í svörum Ingu við fyrirspurn Jóns Péturs Zimsen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Hann gagnrýndi að fyrirhugaðar breytingar fælust í að breyta bókstafseinkunnum í tölur og fella samræmd matsviðmið brott. Það myndi að hans mati draga úr samræmi í námsmati og jafnræði nemenda.

Segir markmiðið að nemendur sitji við sama borð

Jón Pétur vísaði til viðtals við ráðherra í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði rangt að breytingarnar fælu í sér afturhvarf til einkunnakerfisins sem notað hefði verið áður en bókstafseinkunnir voru teknar upp.

Ekki væri verið að taka upp hlutfallskvarðann 1–10 sem nemendur og foreldrar hefðu kallað eftir. Þess í stað ætti að spegla bókstafi í tölustafi og fella brott matsviðmið, sem væru að hans sögn helsta tæki aðalnámskrárinnar til að samræma námsmat.

Inga sagði mál sitt í viðtalinu hafa verið skýrt.

„Við erum ekki að finna upp neitt nýtt námsmat, við erum að gera það skýrara, gagnsærra og auðskiljanlegra.“

Hún hafnaði því að börnum væri mismunað með breytingunum. Þvert á móti væri reynt að tryggja að þau sætu við sama borð hvar sem þau byggju.

Ráðherra vísaði einnig til könnunar meðal grunnskóla og sagði tæplega 70% þeirra hafa lýst því yfir að þeir skildu mjög vel hvað fælist í breytingunum.

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas

Endurskoðun aðalnámskrár taki tíma

Inga lagði áherslu á að breytingarnar næsta vor væru aðeins fyrsta skrefið. Endurskoðun aðalnámskrár væri stærra verkefni en svo að hægt væri að ljúka því á einum degi eða hálfum vetri.

„Jú, markmið mitt er einmitt að koma algjörlega með einkunnakvarðann 1 til 10,“ sagði hún.

Hún benti jafnframt á að lokaeinkunn í námsgrein byggðist ekki á einu prófi heldur heildarmati á ólíkum þáttum námsins.

Inga tók dæmi um að einn skóli gæti gefið 56% nemenda sinna A á meðan enginn nemandi í öðrum skóla fengi þá einkunn. Hún tengdi þennan mun við möguleika nemenda á að komast í þann framhaldsskóla sem þeir kysu helst og sagði breytingunum meðal annars ætlað að koma í veg fyrir slíkt ósamræmi.

„Umbúðir en ekki innihald“

Jón Pétur sagði í síðari ræðu sinni að spurningum hans hefði ekki verið svarað. Það breytti engu hvort einkunnir væru gefnar í tölum eða bókstöfum ef ekkert annað breyttist í undirliggjandi námsmati.

Hann spurði hvernig draga ætti úr mismunun með því að breyta til dæmis bókstafnum B í töluna 7 án þess að annað breyttist.

„Hér er það í raun ásýnd og áferð sem er verið að breyta, ekki innihald. Umbúðir en ekki innihald,“ sagði hann.

Hann ítrekaði að brottfall samræmdra matsviðmiða myndi draga úr samræmi og jafnræði. Þá mótmælti hann því að ráðherra gæfi til kynna að hann vissi betur en málflutningur hans bæri með sér.

Sakar Jón Pétur um „pólitíska hráskinnaleiki“

Inga brást við með því að saka Jón Pétur um „pólitíska hráskinnaleiki“. Hann hefði sjálfur bent á að bókstafseinkunnin B spannaði mjög breitt einkunnabil.

Hún sagði tölueinkunnirnar sem stefnt væri að við lok 10. bekkjar næsta vor verða skiljanlegar bæði nemendum og foreldrum. Þá kvaðst hún telja Jón Pétur sammála þeirri vegferð sem hafin væri, þrátt fyrir gagnrýni hans í þingsal.

„Þetta eru fyrstu skrefin, háttvirtur þingmaður, og þau munu verða fleiri,“ sagði Inga.

Að lokinni endurskoðun aðalnámskrár ættu breytingarnar að ná til allra bekkja grunnskóla, en ekki aðeins lokaeinkunna í 10. bekk.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅