Ísland upp í B-deild eftir annan stórsigur
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tryggði sér sigurinn í fjórða riðli í C-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta með 3:0-sigri á Lúxemborg á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland leikur því í B-deildinni á næsta tímabili.
Íslenska liðið var miklu sterkari aðilinn frá byrjun og sótti án afláts fyrstu mínúturnar. Það skilaði marki á 26. mínútu.
Brynjólfur Andersen Willumsson skallaði boltann þá í netið af stuttu færi eftir að Orri Steinn Óskarsson átti bylmingsskot í slána utan teigs.
Ellefu mínútum síðar tvöfaldaði Andri Lucas Guðjohnsen forskotið af vítapunktinum, en víti var dæmt eftir að varnarmaður Lúxemborgar handlék boltann innan teigs eftir skot frá Orra.
Orri var nálægt því að skora stuttu síðar en Anthony Moris í marki Lúxemborgar varði glæsilega frá honum og voru hálfleikstölur því 2:0.
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður í dag. Hér skýtur hann að marki Lúxemborg. mbl.is/Eggert Johannesson
Íslenska liðið byrjaði af miklum krafti í seinni hálfleik og Mikael Egill Ellertsson gerði þriðja mark Íslands á 50. mínútu með föstu skoti í teignum eftir góða takta hjá Orra Steini.
Leikurinn róaðist töluvert eftir það og litu fá færi dagsins ljós. Varð því öruggur þriggja marka sigur Íslands raunin.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
