Kynntist Viktoriu Beckham og lifði ævintýralífi í Bretlandi

Eik Gísladóttir er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim.

Eik Gísladóttir er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim. Ljósmynd/Marta María

Eik Gísladóttir, fyrrverandi eiginkona knattspyrnumannsins Heiðars Helgusonar, hefur lifað viðburðaríku lífi. Hún flutti ung til Noregs með Heiðari og síðar til Bretlands þar sem hún kynntist mörgum af þekktustu knattspyrnumönnum heims og eiginkonum þeirra. Í hlaðvarpinu Marta María býður heim segir Eik frá árunum í Bretlandi, kynnum sínum af Victoriu Beckham, skilnaðinum og því hvernig hún fann sjálfa sig á ný þegar hún flutti heim til Íslands.

Eik ólst upp í Árbænum og segir æskuárin hafa verið dásamleg. Hún var sjálfstæð frá unga aldri, byrjaði snemma að vinna og hafði mikinn áhuga á íþróttum og heilsurækt. Hún ætlaði sér að verða læknir en lífið tók óvænta stefnu þegar hún kynntist Heiðari Helgusyni þegar honum bauðst að fara til Noregs að spila fótbolta. Hann var 19 ára og hún 21 árs. 

Þau eignuðust fyrsta son sinn í Noregi en þegar hann var níu mánaða flutti fjölskyldan til Englands þar sem Heiðar hóf að spila með Watford. Þar hófst nýr kafli í lífi Eikar.

Kynntist Victoriu Beckham

Eik segir að lífið í kringum ensku knattspyrnuna hafi verið bæði spennandi og skemmtilegt. Hún kynntist fjölda fólks og eignaðist góða vini meðal eiginkvenna annarra knattspyrnumanna.

Ein þeirra sem hún kynntist var Victoria Beckham.

„Já, ég kynntist henni og hún er yndisleg,“ segir Eik og bætir við að hún skilji vel hvers vegna frú Beckham hafi stundum virst stíf í framkomu.

Hún segir að fólk í sviðsljósinu verði oft fyrir mikilli gagnrýni og að hún hafi sjálf fengið innsýn í þann heim.

„Hún er bara eins og ég og þú og við og hin,“ segir Eik.

Þegar Marta María spyr hvort hún eigi einhverjar góðar sögur af frú Beckham verður fátt um svör.

„Það er fullt af alls konar sögum sem maður er með sem maður geymir í svona litlum skókassa. Maður geymir bara undir rúminu,“ segir hún og hlær.

Var alltaf í ákveðnu hlutverki

Þótt lífið í kringum ensku úrvalsdeildina hafi verið ævintýralegt segir Eik að því hafi einnig fylgt ákveðin pressa.

„Maður var alltaf eiginkona fótboltamannsins og alltaf í einhverju ákveðnu gervi,“ segir Eik og játar að það hafi verið fylgst vel með henni á þessum tíma. 

„Maður var mikið að pæla í þessu, hvernig maður væri til fara, og maður var náttúrulega alltaf á fínum bílum og maður átti efni á því líka þá.“

Hún segir að konurnar hafi haldið vel saman enda hafi þær verið í svipaðri stöðu. Eiginmenn þeirra voru mikið í burtu vegna æfinga, leikja og undirbúningstímabila.

Eik segir þó að lífið hafi stundum verið einmanalegt. Hún rifjar meðal annars upp þegar hún var ein heima í Watford með nýfætt barn og tveggja ára son á meðan Heiðar var í burtu.

„Ég varð fárveik, fékk 40 stiga hita og ég var bara ein,“ segir hún.

Þá hafi hún áttað sig á því að hún þyrfti meiri aðstoð og ákveðið að fá sér au pair.

Fann sjálfa sig aftur á Íslandi

Eftir mörg ár erlendis ákvað Eik að flytja heim til Íslands árið 2012. Hún var orðin þreytt á sífelldum flutningum og því að þurfa aftur og aftur að byggja upp nýtt líf á nýjum stað.

Hana langaði einnig að synir hennar fengju að alast upp á Íslandi, læra íslensku og eignast sterk vinatengsl.

Þegar Heiðar kom síðar heim skildi leiðir. Eik segir að þau hafi bæði staðið á miklum tímamótum. Heiðar hafi þurft að finna sér nýjan farveg eftir atvinnumennskuna og hún hafi sjálf þurft að átta sig á því hver hún væri utan þess hlutverks sem hún hafði gegnt í Bretlandi.

„Ég fór bara svolítið að finna líka bara sjálfa mig. Hér er Eik, hver er Eik? Nú ætlar þú að hugsa um hana og láta hana svolítið bara blómstra,“ segir Eik sem er í dag flugfreyja hjá Icelandair en þar starfar líka systir hennar, Ellý Ármannsdóttir. 

„Mig vantar ekki neitt“

Eik segist vera á einstaklega góðum stað í lífinu í dag. Hún er rúmlega fimmtug, börnin hennar eru orðin fullorðin og hún nýtur þess frelsis sem fylgir þessum kafla lífsins.

Hún segist ekki vera að leita að ástinni og finni enga þörf fyrir að breyta lífi sínu.

„Ég er svo hamingjusöm, mér líður svo vel í hjartanu og ég er að meina þetta alveg frá hjartarótum,“ segir hún.

„Ég er búin að gera allt sem mig langaði að gera í lífinu.“

Hægt er að hlusta á viðtalið við Eik Gísladóttur í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅