Bandaríkin missa vottun fyrir útrýmingu mislinga

Rúmlega 5.000 tilfelli mislinga hafa verið staðfest í Bandaríkjunum það sem af er ári. AFP

Bandaríkin munu í þessari viku missa vottun sína sem land þar sem mislingum hefur verið útrýmt, en faraldur þessa hættulega og bráðsmitandi sjúkdóms heldur áfram að breiðast út.

Bandaríkin hlutu vottunina árið 2000 og þótti það mikill sigur fyrir lýðheilsu landsins.

Á undanförnum árum hafa mislingar hins vegar sótt kröftuglega í sig veðrið, knúnir áfram af minnkandi bólusetningarhlutfalli og vaxandi vantrausti almennings á heilbrigðisyfirvöldum.

Mesti fjöldi tilfella síðan 1991

Samkvæmt Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hafa það sem af er ári verið staðfest 5.182 tilfelli þessa sjúkdóms, sem hægt er að koma í veg fyrir með bólusetningu.

Til samanburðar voru tilfellin 2.289 allt árið 2025 og er þetta mesti fjöldi tilfella síðan síðan árið 1991.

Nú hefur nefnd óháðra sérfræðinga, sem Samameríska heilbrigðisstofnunin (PAHO) kallaði saman, úrskurðað að Bandaríkin uppfylli ekki lengur skilyrði vottunarinnar um útrýmingu mislinga, að því er nokkrir bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá.

Vísa þeir til ónafngreindra heimildarmanna sem þekkja til úrskurðarins. Stofnunin hyggst halda blaðamannafund á þriðjudag.

Ríkisstjórnin búið til heilbrigðiskreppu

Staða lands þar sem mislingum hefur verið útrýmt þýðir ekki að engin tilfelli komi upp. Hún þýðir fremur að stöku faraldrar í landinu ljúki innan árs.

Paul Offit, bandarískur barnalæknir sem sérhæfir sig í smitsjúkdómum, bóluefnum, ónæmisfræði og veirufræði, sagði að afturköllun stöðu Bandaríkjanna kæmi ekki á óvart þar sem Bandaríkin glími við sinn versta mislingafaraldur í 35 ár.

Offit sakaði ríkisstjórn Donalds Trump forseta um að hafa ekki tekist á við heilbrigðiskreppu sem hún átti sjálf þátt í að valda.

„Þeir koma aftur á næsta ári og árið þar á eftir. Og þar til við hækkum bólusetningarhlutfallið munu þeir halda áfram að koma aftur,“ sagði Offit.

Heilbrigðisráðherra Trumps, Robert F. Kennedy yngri, er sakaður um að kynda undir vantrausti á heilbrigðisyfirvöldum. Hann er þekktur fyrir efasemdir sínar um bóluefni og hefur ítrekað dreift röngum upplýsingum um mislingabóluefnið og gert lítið úr hættum sjúkdómsins.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅