Lindsay Clancy fer aftur fyrir dóm

Nú er orðið ljóst að réttað verður aftur yfir Lindsay Clancy. AFP

Lindsay Clancy, 36 ára móðir sem er sökuð um að hafa banað þremur börnum sínum, verður dregin aftur fyrir dóm og hefjast ný réttarhöld þann 29. mars, að því er dómari úrskurðaði í dag.

Lindsay hefur beðið átekta að nýju eftir að kviðdómur gat ekki komist að niðurstöðu í máli hennar sem hefur vakið gríðarlega athygli um öll Bandaríkin.

Síðustu réttarhöld ómerkt

Lindsay neitaði því ekki í fyrri réttarhöldunum að hún hefði kyrkt börnin sín, Coru, fimm ára, Dawson, þriggja ára, og Callan, átta mánaða. Hún hélt því fram að hún hefði þjáðst af fæðingargeðrofi, sem að hennar sögn leysi hana undan refsiábyrgð.

Í september tókst kviðdómi, skipuðum níu konum og þremur körlum, ekki að komast að einróma niðurstöðu eins og krafist er í sakamálum í Bandaríkjunum, og voru réttarhöldin því ómerkt.

Upphaflegu réttarhöldin yfir Clancy, þar sem yfir 80 vitni komu fyrir dóminn og fluttur var átakanlegur vitnisburður dögum saman, kveiktu umræðu í Bandaríkjunum um geðheilbrigði mæðra.

Hún neitaði sök á þeim forsendum að hún hefði verið ósakhæf og sagðist hafa heyrt rödd skipa sér að drepa börnin sín. Lögmenn hennar sögðu að fæðingargeðrof hefði valdið þessu, en að sögn lækna leggst sá kvilli á um eina til tvær konur af hverjum 1.000 fæðingum.

Margra vikna sjónvörpuð réttarhöld

Saksóknarar höfnuðu þeim rökum og sögðu að Clancy hefði skipulagt morðin vandlega og verið fær um að skilja afleiðingar gjörða sinna.

Eftir drápin á heimili fjölskyldunnar í Duxbury í Massachusetts í janúar 2023 skar Clancy sig á háls og úlnliði og stökk út um glugga á annarri hæð í því sem virðist hafa verið sjálfsvígstilraun, sem varð til þess að hún lamaðist fyrir neðan mitti og er nú bundin hjólastól.

Kevin Reddington, verjandi Clancy, hafði áður farið fram á að dómarinn kvæði upp sýknudóm, sem hefði í raun þýtt að málinu yrði vísað frá eftir margra vikna sjónvarpað réttarhald sem hélt Bandaríkjamönnum hugföngnum.

Þess í stað ákvað dómarinn að réttað yrði að nýju eftir nokkur þinghöld þar sem ákæruvaldið og verjendur tókust á um örlög Clancy.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅