Ísland upp um deild með stæl
Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. nóvember 2026 18:52
Andri Lucas Guðjohnsen. Mynd: DV/KSJ
Íslenska karlalandsliðið vann sannfærandi sigur á Lúxemborg, tryggði sér efsta sæti síns riðil í C-deild Þjóðadeildarinnar og þar með sæti í B-deild.
Eftir 0-5 sigur á Búlgaríu fyrir helgi gaf íslenska liðið lítið eftir í dag og var betra liðið frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
Brynjólfur Willumsson kom Íslandi yfir á 26. mínútu þegar hann skoraði af harðfylgi eftir sláarskot Orra Steins Óskarssonar. Það er hugsanlegt að skot Orra hafi farið yfir línuna en niðurstaðan sú sama, Ísland leiddi leikinn.
Ísland fékk víti um tíu mínútum síðar þegar Orri skaut í hönd leikmanns gestanna. Hinn sjóðheiti Andri Lucas Guðjohnsen fór á punktinn og skoraði af öryggi.
Mikael Egill Ellertsson innsiglaði 3-0 sigur Íslands með góðu marki eftir flottan undirbúning Orra, sem var allt í öllu í dag, snemma í seinni hálfleik.
Ísland lýkur keppni í C-deildinni með 14 stig, 2 stigum á undan Eistlandi. Búlgaría endar með 4 stig og Lúxemborg 3.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗