Einkunnir leikmanna Íslands eftir gott kvöld í Laugardalnum - Var allt í öllu
433
Mánudaginn 16. nóvember 2026 18:53
Orri Steinn Óskarsson. Mynd: DV/KSJ
Íslenska karlalandsliðið vann sannfærandi sigur á Lúxemborg, tryggði sér efsta sæti síns riðil í C-deild Þjóðadeildarinnar og þar með sæti í B-deild.
Eftir 0-5 sigur á Búlgaríu fyrir helgi gaf íslenska liðið lítið eftir í dag og var betra liðið frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
Brynjólfur Willumsson kom Íslandi yfir á 26. mínútu þegar hann skoraði af harðfylgi eftir sláarskot Orra Steins Óskarssonar. Það er hugsanlegt að skot Orra hafi farið yfir línuna en niðurstaðan sú sama, Ísland leiddi leikinn.
Ísland fékk víti um tíu mínútum síðar þegar Orri skaut í hönd leikmanns gestanna. Hinn sjóðheiti Andri Lucas Guðjohnsen fór á punktinn og skoraði af öryggi.
Mikael Egill Ellertsson innsiglaði 3-0 sigur Íslands með góðu marki eftir flottan undirbúning Orra, sem var allt í öllu í dag, snemma í seinni hálfleik.
Ísland lýkur keppni í C-deildinni með 14 stig, 2 stigum á undan Eistlandi. Búlgaría endar með 4 stig og Lúxemborg 3.
Hákon Rafn Valdimarsson - 6
Þurfti ekki að verja skot í leiknum.
Guðlaugur Victor Pálsson - 7
Solid vakt hjá Gulla eins og oft áður.
Hjörtur Hermannsson (64’) - 6
Kom beint inn í byrjunarliðið eftir að hafa verið kallaður inn í hópinn og leysti verkefnið vel þó hasarinn hafi ekki verið mikill fyrir varnarmennina.
Daníel Leó Grétarsson - 7
Rólegur leikur fyrir varnarlínuna en Daníel steig vart feilspor og var góður í að bera boltann upp og koma honum á rétta staði framar á vellinum.
Logi Tómasson - 7
Fékk að taka mikinn þátt í sóknarleiknum eins og á gjarnan við, fékk fínt færi til að skora og átti fínustu frammistöðu.
Brynjólfur Willumsson - 7
Allt í öllu í fyrri hálfleik og skorar mark sitt af harðfylgi. Ekki eins áberandi í seinni hálfleik en þó virkilega fín frammistaða.
Ísak Bergmann Jóhannesson - 6
Gerði sitt nokkuð vel. Ekki yfir miklu að kvarta.
Hákon Arnar Haraldsson (46’) - 7
Flottur í fyrri hálfleik og var að tengja vel við fremstu menn áður en hann var tekinn af velli eftir 45.
Mikael Egill Ellertsson (64’) - 7
Áberandi í sóknarleik Íslands og skorar gott mark.
Andri Lucas Guðjohnsen (46’) - 7
Vann vel fyrir liðið og skoraði, eins og hann gerir í nær öllum leikjum þessa dagana. Fór af velli í hálfleik, að því er virðist vegna meiðsla eða óþæginda. Vonandi ekkert alvarlegt.
Orri Steinn Óskarsson (78’) - 8 (Maður leiksins)
Lykilmaður í öllum mörkum Íslands. Á sláarskot, þar sem boltinn fór mögulega inn, sem leiðir til þess að Brynjólfur skorar, sækir vítið sem Andri skorar úr og leggur glæsilega upp á Mikael Egil.
Varamenn
Gylfi Þór Sigurðsson (46’) - 6
Kristian Hlynsson (46’) - 6
Aron Einar Gunnarsson (64’) - 7
Jón Dagur Þorsteinsson (64’) 6
Aðrir spiluðu of lítið til að fá einkunn
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗