Segir fjárhagsstuðningi við Úkraínu lokið nái hún kjöri
Marine Le Pen, forsetaframbjóðandi frönsku Þjóðfylkingarinnar, sagði í kjölfar fundar með sendiherra Úkraínu í París í dag að Frakkland myndi ekki veita Úkraínu frekari fjárhagsaðstoð verði hún kjörin á næsta ári.
„Staða opinberra fjármála Frakklands myndi ekki lengur leyfa landinu að veita Úkraínu fjárhagsaðstoð á komandi mánuðum,“ sagði Marine Le Pen í yfirlýsingu.
Hún lagði þó jafnframt áherslu á að Frakkland myndi standa við gildandi skuldbindingar, meðal annars varðandi 90 milljarða evra lán Evrópusambandsins.
Með forystu í skoðanakönnunum
Le Pen er nú með forystu í skoðanakönnunum í baráttunni um að taka við af Emmanuel Macron forseta á næsta ári, á sama tíma og stríðið sem hófst með allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu árið 2022 er komið vel á fimmta ár.
Hún hefur sætt gagnrýni vegna fyrri tengsla sinna við Rússland, meðal annars fundar með Vladímír Pútín forseta í Kreml árið 2017 og láns sem flokkur hennar tók hjá rússneskum banka og greiddi að fullu upp árið 2023.
Hún hefur aftur á móti lagst gegn innrásinni og eftir viðræður sínar við Vadím Omeltsjenkó, sendiherra Úkraínu í París, lýsti hún yfir „óbilandi stuðningi sínum við Úkraínu frá upphafi átakanna“.
Lofar stuðningi í öðrum búningi
Í yfirlýsingunni sagði að viðræðurnar, þær fyrstu sinnar tegundar milli Le Pen og sendiherra Úkraínu, hefðu verið „vinsamlegar“.
Þótt fjárhagsaðstoð yrði skorin niður sagði Le Pen sendiherranum að „Frakkland myndi halda áfram að styðja Úkraínu með gjöfum á búnaði, mannúðaraðstoð og mun virkari erindrekstri“.
Hún bað sendiherrann einnig að skila því til Volodimírs Selenskí forseta að hún væri reiðubúin að hitta hann „annað hvort í París eða Brussel“. Hins vegar var ekkert minnst á að frambjóðandinn myndi ferðast til Kænugarðs eftir að Selenskí bauð henni að heimsækja úkraínsku höfuðborgina.
Andstæðingar Le Pen hafa lýst áhyggjum af því að með því að leggja áherslu á mikilvægi þess að binda skjótan enda á stríðið gæti hún neytt Úkraínu til að gefast upp við óhagstæð kjör.
„Ef Rússland þröngvar vilja sínum upp á evrópska þjóð með grimmd veikist öll Evrópa,“ skrifaði Macron á Facebook um helgina.
Hann beindi spjótum sínum að Le Pen og sagði: „Höfum það á hreinu: Þeir sem vilja takmarka þær bjargir sem Úkraína hefur aðgang að eru í raun að þrýsta á óréttlátan frið, frið sem myndi gera Úkraínu varanlega berskjaldaða og þar með Evrópu líka.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗