Myndskeið: Mjög ljótt athæfi hjá Bellingham

Marc Cucurella svekktur á meðan Jude Bellingham fagnar marki.

Marc Cucurella svekktur á meðan Jude Bellingham fagnar marki. AFP/Javier Soriano

Enski knattspyrnumaðurinn Jude Bellingham var gagnrýndur fyrir framkomu sína í garð Marc Cucurella, liðsfélaga síns hjá Real Madrid, í 3:2 sigri Englands á Spáni í Þjóðadeild UEFA í Madríd á sunnudag.

„Mjög ljótt athæfi hjá Bellingham,“ sagði lýsandinn Antonio Romero á Cadena SER um atvik á milli liðsfélaganna.

Myndskeið sýndu Bellingham beygja sig yfir spænska varnarmanninn og reyna að toga hann á fætur í atvikinu í kringum vítaspyrnu Harrys Kane.

Þeim lenti einnig saman við göngin í hálfleik. England batt enda á 43 leikja taplausa hrinu Spánar og endaði í efsta sæti síns riðils í Þjóðadeildinni.

Myndskeið af atvikinu má sjá hér fyrir neðan. 

🗣️ Jude Bellingham demande à Marc Cucurella de se lever, considérant la faute moins grave que ce que l’Espagnol laisse paraître et perd patience avec son coéquipier en club. @ainoafrndz https://t.co/xFMPYqcIUg

— Le Journal du Real (@lejournaldureal) November 15, 2026

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅