Bregst við ásökunum um framhjáhald - Sögð hafa dansað í kjöltu hans í einkasamkvæmi þar sem símar voru bannaðir

Neymar, knattspyrnustjarna sem nú leikur með Santos í heimalandinu Brasilíu, hefur vísað á bug sögusögnum um að hann hafi kysst Virginiu Fonseca, fyrrverandi kærustu Vinicius Junior, í einkasamkvæmi í Sao Paulo.

Brasilíski blaðamaðurinn Fabia Oliveira greindi frá því að Neymar og Virginia hefðu virkað afar náin á pókerkvöldi þann 6. nóvember. Gestir áttu meðal annars að hafa séð Virginiu dansa í kjöltu Neymar en símanotkun var bönnuð í samkvæminu.

Neymar, sem er 34 ára, er í sambandi með Brunu Biancardi og eiga þau von á sínu þriðja barni saman. Bæði hann og Virginia hafa alfarið hafnað ásökununum.

„Ég geri yfirleitt ekki svona í gegnum Instagram en nú gengu þau of langt. Það er saga í gangi um að ég eigi í sambandi við aðra manneskju og ég neita því! Það er sorglegt að við búum í heimi þar sem fólk hefur meiri áhuga á athygi en raunveruleikanum sjálfum,“ segir Neymar.

Fulltrúar Virginiu hafa sömuleiðis sagt sögusagnirnar algjörlega ósannar. Engar staðfestar myndir eða myndskeið hafa komið fram sem styðja fullyrðingarnar.

Virginia var áður í sambandi með Vinicius, samherja Neymar í brasilíska landsliðinu, en þau slitu sambandinu í október.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅