Gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Liverpool
Liverpool færist nær því að ætla að kaupa Ronald Araujo frá Barcelona næsta sumar eftir frábæra byrjun Úrúgvæans á Anfield. Spænska blaðið Marca greinir frá þessu.
Araujo, sem er 27 ára, kom til Liverpool á láni í sumar og hefur staðið sig vel undir stjórn Andoni Iraola, einkum í stöðu hægri bakvarðar þrátt fyrir að vera miðvörður að upplagi.
Liverpool hefur kauprétt á varnarmanninum upp á um 47 milljónir punda. Ákveði félagið að nýta hann og Araujo samþykki félagaskiptin getur Barcelona ekki komið í veg fyrir þau.
Araujo er sagður ánægður hjá Liverpool og því eru góðar líkur á að hann vilji vera áfram.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗