Bond númer 007: Hver er Robert Pattinson?

Breski leikarinn, sem er fertugur, varð heimsþekktur fyrir leik sinn í Twilight-myndunum en hefur síðan hlotið lof gagnrýnenda fyrir fjölbreytt hlutverk. AFP

Robert Pattinson verður sjöundi leikarinn til að túlka njósnarann heimsfræga í hinni opinberu kvikmyndaröð um James Bond

Breski leikarinn, sem er fertugur, varð heimsþekktur fyrir leik sinn í Twilight-myndunum en hefur síðan hlotið lof gagnrýnenda fyrir fjölbreytt hlutverk. Hann lék Leðurblökumanninn í The Batman frá árinu 2022 og kom einnig fram í nýlegri stórmynd Christophers Nolans, The Odyssey.

Nú tekur hann við aðalhlutverkinu í Bond-myndaröðinni, sem er komin í hendur Amazon MGM. Þá hefur leikur hans í nýjustu mynd hans, Primetime, vakið vangaveltur um mögulega tilnefningu til Óskarsverðlauna.

Í tilkynningu Amazon MGM í dag sagði Pattinson það vera „mesta heiður ævinnar“ að fá að leika njósnarann úr smiðju Ians Flemings.

Denis Villeneuve, sem leikstýrir næstu Bond-mynd, sagði Pattinson búa yfir „hinni sígildu sál 007“ en jafnframt færa hlutverkinu „alveg nýjan anda“.

Daniel Craig lék í Bond í fimm myndum frá 2006 til 2021. AFP

Frá Hogwarts til Twilight

Pattinson fæddist í Lundúnum 13. maí 1986. Hann steig sín fyrstu skref hjá áhugaleikfélagi en fékk fyrsta stóra tækifærið í Harry Potter and the Goblet of Fire árið 2005. Þar lék hann Cedric Diggory, sem var fulltrúi Hogwarts-skólans í Þrígaldraleikunum.

Það var þó hlutverkið í Twilight árið 2008 og framhaldsmyndunum fjórum sem gerði hann að heimsstjörnu.

Rómantísku kvikmyndirnar Remember Me frá 2010 og Water for Elephants frá 2011 styrktu einnig stöðu hans. Á þessum árum voru Pattinson og þáverandi kærasta hans, Kristen Stewart, sem lék á móti honum í Twilight-myndunum, mikið í sviðsljósi slúðurmiðla.

Einstaklega hugmyndaríkur

Þrátt fyrir vinsældirnar sóttist Pattinson jafnframt eftir hlutverkum í kvikmyndum sem fóru ótroðnar slóðir. Eitt fyrstu dæmanna var Cosmopolis frá 2012. Þar lék hann gjaldeyrisbraskara sem horfir upp á líf sitt hrynja og stefnir sjálfum sér í glötun.

David Cronenberg leikstýrði myndinni og lýsti Pattinson sem „einstaklega hugmyndaríkum“ leikara.

Árið 2015 lék Pattinson T.E. Lawrence í Queen of the Desert eftir Werner Herzog. Sama ár fór hann með hlutverk ljósmyndarans sem átti þátt í að gera James Dean að goðsögn í Life eftir Anton Corbijn.

„Undanfarin ár hef ég í rauninni valið verkefni eingöngu vegna leikstjórans. Eftir að ég vann með Cronenberg við Cosmopolis opnuðust nýjar dyr og fólk fór að nálgast mig á annan hátt,“ sagði Pattinson í viðtali við menningarvefinn The Talks árið 2015.

„Það er býsna gott að taka að sér minni hlutverk, svo myndin standi ekki og falli alveg með frammistöðu minni. Ég fæ að vinna með þeim sem mig langar að vinna með og það er ekki mér að kenna ef myndin skilar engum hagnaði,“ bætti hann við.

Pattinson fæddist í Lundúnum 13. maí 1986. Hann steig sín fyrstu skref hjá áhugaleikfélagi en fékk fyrsta stóra tækifærið í Harry Potter and the Goblet of Fire árið 2005. AFP

Lof fyrir óháðar kvikmyndir

Pattinson hefur hlotið lof fyrir leik sinn í fjölda óháðra kvikmynda, meðal annars glæpamyndinni Good Time frá 2017 eftir bræðurna Josh og Ben Safdie.

Hann fékk einnig góða dóma fyrir frammistöðu sína á móti landa sínum Charlie Hunnam í The Lost City of Z frá sama ári. Myndin byggist á sönnum atburðum og fjallar um leit að horfinni siðmenningu í frumskógum Suður-Ameríku sem endaði með ósköpum.

Meðal nýrri verkefna er spennumyndin Die, My Love eftir skoska leikstjórann Lynne Ramsay. Þar leikur hann á móti Jennifer Lawrence í sögu um unga móður sem glímir við þunglyndi.

Samhliða þessu hefur Pattinson leikið í stórmyndum á borð við Tenet eftir Nolan frá 2020 og The Batman eftir Matt Reeves frá 2022.

Framhaldsmyndin The Batman: Part II er nú í framleiðslu og er sögð væntanleg í kvikmyndahús árið 2027. Pattinson fer þar aftur með hlutverk Bruce Wayne.

Hann ljáði einnig hegranum rödd sína í enskri útgáfu teiknimyndarinnar The Boy and the Heron eftir Hayao Miyazaki. Hún er í fimmta sæti yfir tekjuhæstu japönsku kvikmyndir allra tíma.

Pattinson hefur leikið í stórmyndum á borð við Tenet eftir Nolan frá 2020 og The Batman eftir Matt Reeves frá 2022. AFP

Sex fyrirrennarar í hlutverki Bonds

Sex leikarar hafa farið með hlutverk James Bond í hinni opinberu kvikmyndaröð frá því fyrsta myndin, Dr. No, var frumsýnd árið 1962.

Hér má sjá hvaða myndir hver þeirra lék í.

1. Sean Connery

Dr. No (1962)
From Russia with Love (1963)
Goldfinger (1964)
Thunderball (1965)
You Only Live Twice (1967)
Diamonds Are Forever (1971)

Connery sneri aftur sem Bond í Never Say Never Again árið 1983. Sú mynd tilheyrir þó ekki hinni opinberu myndaröð.

2. George Lazenby

On Her Majesty’s Secret Service (1969)

3. Roger Moore

Live and Let Die (1973)
The Man with the Golden Gun (1974)
The Spy Who Loved Me (1977)
Moonraker (1979)
For Your Eyes Only (1981)
Octopussy (1983)
A View to a Kill (1985)

4. Timothy Dalton

The Living Daylights (1987)
Licence to Kill (1989)

5. Pierce Brosnan

GoldenEye (1995)
Tomorrow Never Dies (1997)
The World Is Not Enough (1999)
Die Another Day (2002)

6. Daniel Craig

Casino Royale (2006)
Quantum of Solace (2008)
Skyfall (2012)
Spectre (2015)
No Time to Die (2021)

Barry Nelson og David Niven léku einnig James Bond, árin 1954 og 1967, í verkum utan hinnar opinberu myndaraðar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅