Rekinn frá Tindastóli

Ade Murkey í leik gegn Tindastóli á síðasta tímabili.

Ade Murkey í leik gegn Tindastóli á síðasta tímabili. mbl.is/Karítas

Tindastóll hefur ákveðið að rifta samningi bandaríska körfuboltamannsins Ade Murkey. 

Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins en Murkey gekk í raðir Tindastóls fyrir tímabilið. 

Murkey er 28 ára gamall en hann lék með Álftanesi á síðasta tímabili. Murkey gerði 13 stig og gaf tvær stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Sauðkrækinga á tímabilinu.

Tindastólsmenn eru í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir sex leiki og hafa unnið alla leiki sína í A-riðlinum í Norður-Evrópudeildinni. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅