Hætti við áfrýjun og biðst afsökunar – „Ég tilheyrði heimi sem er ekki lengur til“

Kristinn H. Guðnason

Mánudaginn 16. nóvember 2026 17:30

Depardieu ætlar ekki að áfrýja kynferðisbrotadómi sínum.

Franski kvikmyndaleikarinn Gerard Depardieu hefur hætt við áfrýjun sína eftir kynferðisbrotadóm sinn. Þess í stað biður hann fórnarlömb sín afsökunar.

Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.

„Ég var fundinn sekur. Þess vegna bið ég þá sem hafa orðið fyrir þjáningum djúpt og einlæglega afsökunar,“ segir Depardieu í yfirlýsingu.

Hinn 77 ára Depardieu var í fyrravor dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum við tökur á kvikmyndinni Les Volets Verts árið 2021. Káfaði hann á brjóstum og rassi annarar konunnar en klemmdi hina á milli lappa sér og greip um mjaðmir hennar.

Depardieu hlaut 18 mánaða skilorðsbundinn dóm auk þess sem hann var settur á opinberan lista yfir dæmda kynferðisbrotamenn. Þá var honum gert að greiða konunum 29 þúsund evrur hvorum, það er um 4 milljónir króna.

Depardieu neitaði sök í málinu og sagði að ef hann hefði snert konurnar þá hefði það verið óviljandi. Sagðist hann ætla að áfrýja dóminum. Nú hefur hann hætt við það og beðist afsökunar á hegðun sinni.

Sjá einnig:

Leikarinn segist vera of feitur og gamall til að vera sekur

„Á kvikmyndasettum hef ég lengi falið mig á bak við ögranir og dónalegan húmor. Ég trúði því að orð mín og gjörðir hefðu engar afleiðingar. En þær höfðu það, sérstaklega þegar þær komu frá einhverjum sem hafði jafn mikil völd og ég hafði einu sinni,“ segir Depardieu. „Ég hef komist að því að ég tilheyrði heimi sem er ekki lengur til. Ég hef því ákveðið að draga áfrýjun mína til baka.“

En þar með eru ekki öll mál úr sögunni. Leikkonan Charlotte Arnould hefur kært Depardieu fyrir nauðgun. Á næstunni mun dómstóll skera úr um hvort það mál verði dómtekið.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅