Einar berst fyrir forvörn gegn byrlunum – Missti handlegg í hræðilegu slysi á Spáni
Með forvarnarverkefninu Arnarskjöldur er barist fyrir því að rekstraraðilar veitingastaða, bara, hótela og viðburða og verði skyldaðir til að hafa tiltæk öryggislok á glös fyrir gesti til varnar gegn byrlunum. Tillagan gengur út á að gestir fái upplýsingar um að öryggislok séu í boði en ráði sjálfir hvort þeir þiggja þau. Starfsfólk staðanna fái fræðslu um byrlanir og viðbrögð við grun um að átt hafi verið við drykk.
Stofnandi Arnarskjaldar er Einar Örn Ásdísarson og brennur hann mjög fyrir verkefninu. Í samtali við DV segist hann þekkja fjórar manneskjur sem hafi orðið fyrir byrlunum, þar á meðal er náinn aðstandandi hans sem var nauðgað hrottalega í kjölfar byrlunar.
Þann 9. nóvember síðastliðinn sendi Einar erindi um þetta til atvinnuvegaráðueneytisins og allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Erindið er nú til skoðunar þar.
Einar leggur áherslu á að drykkjarlokin útiloki engan veginn byrlun en séu viðbótarvörn. Afar brýnt sé að gestir geti leitað strax til starfsfólks staðanna ef þeim líður illa eða grunar að átt hafi verið við drykk þeirra.
Nánar er fjallað um málið í grein á frettin.is sem og fleiri fyrirhuguð verkefni Arnarskjaldar.
Undirskriftasöfnun, þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að leggja fram frumvarp þar sem rekstraraðilar eru skyldaðir til að bjóða gestum öryggislok fyrir drykki, hefur verið stofnuð á island.is, sjá hér.
Erfið fortíð að baki
Einar, sem er á sextugsaldri, hefur marga fjöruna sopið um æfina og brotist í gegnum mikla erfiðleika, eins og hann greinir frá í erindi til DV:
„Árið 2017 lenti ég í alvarlegu slysi á Spáni og missti hægri handlegg fyrir ofan olnboga. Það var ekki bara missir útlimsins sem breytti lífi mínu. Við slysið skemmdust vefir svo mikið að verulegur hluti tvíhöfðavöðvans (biceps) var fjarlægður og mjúkvefjaþekja yfir enda upphandleggsbeinsins varð takmörkuð. Ég hef síðan búið við mjög sára taugaenda, taugaæxli (neuromas), verk í aflimunarstúf og þráláta draugaverki í hendi sem er ekki lengur til staðar.
Ég lýsi verkjunum sem sviða, bruna, þrýstingi, náladofa og tilfinningu eins og fingur og lófi séu kramdir. Snerting, hitabreytingar og kuldi eða hiti geta vakið mikinn sársauka. Ég hef um árabil þurft að kæla stúfinn í köldu vatni og nota kælipoka til að komast í gegnum daginn og næturnar. Svefntruflanir og álag hafa fylgt þessu. Þrátt fyrir þetta hef ég reynt að halda í trúna, félagslífið og löngunina til að gera gagn.“
„Handhafinn“ Guðmundur Felix Grétarsson, sem sjálfur gekkst undir handaígræðslu eins og frægt er, hafði milligöngu um aðgerð sem Einar gekkst undir í Svíþjóð:
„Guðmundur Felix Grétarsson átti þátt í að beina mér að sænska sérfræðingnum Elísabetu Hagert. Hinn 25. janúar 2019 gekkst ég undir TMR-aðgerð (targeted muscle reinnervation), þar sem meðhöndlaðar voru meðal-, ölnar- og sveifartaugar (median, ulnar og radial). TMR felur í sér að tengja skaddaða taugaenda við hreyfitaugagreinar í vöðva, meðal annars með það að markmiði að minnka sársaukafulla taugahnúta og mögulega bæta stýrimerki fyrir stoðtæki. Ég fann fyrst fyrir bata. Um mánuði síðar datt ég af reiðhjóli og hef lengi haft áhyggjur af því hvort ein taugatengingin hafi skaðast; það er mín tilgáta, ekki staðfest niðurstaða.“
Róttækar tilraunir til að ráða bót á meinum hans hafa ekki skilað tilætuðum árangri til lengri tíma og hann er ósáttur við aðgerð sem gerð var á honum á Landspítalanum árið 2021. „Samkvæmt minni lýsingu voru taugaæxli færð ofar og taugaendar festir við vöðvavef, en ekki gerð ný TMR-taugatenging eins og ég hafði vonast eftir. Ég tel útkomuna hafa orðið verri og lýsi því að sársaukafullum taugaæxlum hafi fjölgað.“
Einar segist hafa átt í erfiðum samskiptum við heilbrigðiskerfið sem ekki hafi hlustað nægilega vel á hann. Hann skoðar núna aðrar leiðir til að öðlast meiri bata, meðal annars kannar hann möguleika á notkun vöðvamerkjastýrðrar gervihendi og hefur verið boðaður til prófunar hennar hjá Stoð ehf.
Brotaferill og fíkn
Einar á erfiða fortíð að baki og stríddi við fíkn lengi framan af ævinni. Hann viðurkennir að hann hafi afplánað refsidóma fyrir ýmis brot.
„Ég hef átt erfiða fortíð, meðal annars glímt við fíkn og afplánað dóma. Ég fel það ekki. Undanfarinn áratug hef ég að mestu lifað edrú, þó að ég hafi lýst nokkrum stuttum bakslögum. Nú er ég virkur í AA og vinn sporin. Mikilvægasta spurningin fyrir mig er ekki hvernig fortíðin lítur út, heldur hvernig ég get lifað í dag og hvað ég get gert fyrir aðra. Ég hef sterka trú á að hægt sé að breyta lífi og að kærleikur, ábyrgð og samstaða geti skilað raunverulegum árangri,“ segir hann og í þessum anda hefur hann stofnað verkefnið Arnarskjöld.
Á Facebook-síðu Arnarskjaldar segir: „VERNDUM HVERT ANNAÐ. Arnarskjöldur býður öryggislok fyrir drykki sem hjálpa til við að draga úr hættu á byrlun. Markmið okkar er að öryggislok verði sjálfsagður valkostur á börum, veitingastöðum, hótelum, tónleikum og útihátíðum.“
Einar vill að lokum hvetja þjóðina til að taka átakinu opnum örmum og skrifa undir áskorunina á stjórnvöld: „Ég hvet íslensku þjóðina til að fara á island.is með rafrænum skilríkjum og styðja frumvarp um auka öryggisbúnað á veitingahúsum, börum, hótelum, útihátíðum, stórum sem litlum viðburðum o.s.frv. þar sem drykkir eru í boði almennt, hvort sem þeir eru áfengir eða óáfengir.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗