Guardiola segir nei

Pep Guardiola ætlar ekki að taka við bandaríska landsliðinu.

Pep Guardiola ætlar ekki að taka við bandaríska landsliðinu. AFP/Franck Fife

Búist er við því að Pep Guardiola hafni boði um að þjálfa karlalandslið Bandaríkjanna í knattspyrnu, samkvæmt The Telegraph.

Guardiola vill taka sér heilt ár frá þjálfun eftir að hann yfirgaf Manchester City eftir síðasta tímabil.

Spánverjinn er efstur á óskalista bandaríska sambandsins en staðan verður brátt laus þar sem Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United.

Guardiola hefur lýst yfir áhuga á að þjálfa landslið en er sagður staðráðinn í að halda hléinu til streitu. Pochettino á að hefja störf hjá United 18. nóvember.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅