Guardiola segir nei
Búist er við því að Pep Guardiola hafni boði um að þjálfa karlalandslið Bandaríkjanna í knattspyrnu, samkvæmt The Telegraph.
Guardiola vill taka sér heilt ár frá þjálfun eftir að hann yfirgaf Manchester City eftir síðasta tímabil.
Spánverjinn er efstur á óskalista bandaríska sambandsins en staðan verður brátt laus þar sem Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United.
Guardiola hefur lýst yfir áhuga á að þjálfa landslið en er sagður staðráðinn í að halda hléinu til streitu. Pochettino á að hefja störf hjá United 18. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗