Fyrrum formaður bandaríska fjármálaeftirlitsins spáir því að gervigreindarbólan muni springa á næstunni

Gervigreindarbólan gæti sprungið á næstunni með tilheyrandi samdrætti í bandarísku efnahagslífi. Þetta er mat Gary Gensler, fyrrverandi formanns fjármálaeftirlits Bandaríkjanna (SEC), en í samtali við CNN segir hann ljóst að sú uppsveifla sem hefur átt sér stað vegna gervigreindar sé augljóslega bóla sem muni springa og valda samdrætti fyrir forsetakosningarnar árið 2028.

Gervigreindariðnaðurinn hefur gengið í gegnum röð áfalla undanfarnar vikur. Stórsigur demókrata í þingkosningunum hefur vakið ótta fjárfesta um aðgerðir gegn uppbyggingu gagnavera sem eru nauðsynleg í uppbyggingu gervigreindar en óvinsæl meðal almennings. Einn mikilvægasti maðurinn í gervigreindarbólunni, Jensen Huang, sagði af sér sem forstjóri Nvidia í síðustu viku í kjölfar hneykslismála og hafði það bein áhrif á fyrirtæki hans sem telst vera eitt það verðmætasta í heiminum.

Gensler telur uppsveifluna ekki sjálfbæra. Hann bendir á að ótrúlegum fjárhæðum hafi verið dælt í uppbyggingu gervigreindarinnviða, samkvæmt sumum áætlunum allt að 800 milljörðum dala á ári, eða rúmlega 100 þúsund milljörðum króna.

„Sagan segir okkur að þegar ný tækni kemur fram og umtalsvert er fjárfest í henni þá kemur að þeim tíma að vöxturinn staðnar og það verður samdráttur.“

Spurningin sé því ekki hvort þetta muni eiga sér stað heldur hversu alvarleg niðursveiflan verður.

CNN rekur að Gensler sé nú formlega genginn í hóp áberandi einstaklinga úr fjármálalífinu sem hafa varað við gervigreindarbólunni. Þar með taldir eru milljarðamæringurinn Ray Dalio, fjárfestirinn Mike Novogratz og hagfræðingurinn Kenneth Rogoff.

Nefnir Gensler járnbrautarbóluna sem dæmi um svipaða þróun, en það ævintýri leiddi til djúprar niðursveiflu og kreppu. Það sama átti sér svo stað þegar rafmagn kom til sögunnar og aftur með tilkomu Internetsins. Gervigreindargullæðið sé þó sögulegt að stærð og umfangi. Fjármagnið streymir inn hraðar en gervigreindarfyrirtækin skila hagnaði. Staðan er ósjálfbær og hætt við því að fyrirtæki séu að offjárfesta og hlaða á sig of miklum skuldum.

Hann spáir því að niðursveiflan eftir að bólan springur verði á pari við það sem átti sér stað þegar svokölluð netbóla sprakk um aldamótin. Hann óttast ekki að fallið verði jafn harkalegt og í efnahagshruninu 2008.

Ekki eru allir jafn svartsýnir og Gensler. CNN ræddi við forstóra Yardeni-rannsókna, Ed Yardeni, en hann telur síðustu vikur hafa sýnt að viðnámsþol gervigreindariðnaðarins. Hann tekur undir að um bólu sé að ræða en telur að nú sé loftið farið að leka úr henni. Þar með þurfi hún ekki að springa heldur muni hún leiðrétta sig sjálf. Yardeni er þarna ekki að tala út í loftið en hann var aðalhagfræðingur Deutsche Bank þegar netbólan sprakk. Hann telur þó ágætt að menn eins og Gensler vari við stöðunni, slík varnarorð séu til þess fallin að halda fjárfestum á jörðinni sem dragi úr áhættunni.

Gensler heldur fast í svartsýnina. Hann segist sjá óveðurský safnast saman við sjóndeildarhringinn. Ómögulegt sé að spá fyrir um hversu slæmur stormurinn verður en hann mælir með því að fólk hugi að lausamunum og hafi regngallann tilbúinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅