„Hissa, sár og svekkt“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segist vera „hissa, sár og svekkt“ út í Ingvar Þóroddsson vegna brotthvarfs hans úr Viðreisn.
Hún gagnrýnir að sá sem hafi hlotið traust flokksins til að leiða lista hans í Norðausturkjördæmi skuli yfirgefa flokkinn og skilja kjósendur Viðreisnar þar eftir án þingmanns flokksins.
Þetta kom fram þegar Hanna Katrín ræddi við blaðamenn í þinghúsinu í dag um brotthvarf Ingvars og stöðu ríkisstjórnarinnar.
„Það er alveg glatað að kjósendur Viðreisnar í Norðausturkjördæmi skuli núna vera án þingmanns eftir að sá einstaklingur sem hlaut traust flokksins í að leiða listann stekkur frá borði,“ sagði hún.
Spurð hvort hún væri sár út í Ingvar svaraði hún:
„Já, ég er það, hissa, sár og svekkt.“
„Það þarf sterk bein í það verkefni“
Hanna Katrín sagði stefnu ríkisstjórnarinnar skýra. Hún starfaði samkvæmt stefnuyfirlýsingu sem allir þingmenn stjórnarflokkanna hefðu greitt atkvæði sitt með. Stærsta verkefnið væri áfram að ná tökum á ríkisfjármálunum.
„Það þarf sterk bein í það verkefni. Það þarf að taka margar nauðsynlegar og erfiðar ákvarðanir. Við höldum bara áfram á þeirri vegferð.“
Spurð hvort þessi orð beindust að Ingvari sagðist hún vera að lýsa stöðunni. Þótt hún hefði áður í viðtalinu sagst hissa sagði hún brotthvarfið í sjálfu sér ekki koma sérlega á óvart.
Hún ítrekaði að ríkisstjórnin ætlaði að ná tökum á ríkisfjármálunum. Til þess þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir, bæði um að draga úr útgjöldum og afla tekna með gjaldahækkunum. Það væri í þágu almennings og fyrirtækja í landinu.
Telur óánægjuna ekki endurspegla stöðuna í flokknum
Hanna Katrín var spurð hvort óánægja þingmannanna tveggja sem hefðu yfirgefið þingflokk Viðreisnar á um mánuði endurspeglaði víðtækari óánægju innan flokksins eða meðal kjósenda hans.
Hún taldi svo ekki vera og áréttaði að Jón Gnarr hefði ekki gengið úr Viðreisn, þótt hann hefði yfirgefið þingflokkinn. Hann styddi ríkisstjórnina áfram, nokkuð sem Ingvar hefði greinilega ekki séð sér fært að gera lengur.
Hún kvaðst ekki verða vör við að afstaða Ingvars endurspeglaði víðtækari óánægju.
Spurð hvort hún hefði trú á að þingflokkurinn héldist óbreyttur sagðist hún vona að þingmönnum hans myndi fjölga. Hún ætlaði þó ekki að fara í neinar „veiðar“.
Segir stjórnarsamstarf krefjast málamiðlana
Þegar vísað var til pólitískrar sannfæringar Ingvars og spurt hvort hún skildi ákvörðun hans sagði Hanna Katrín pólitík í eðli sínu vera list málamiðlana, ekki síst í samstarfi fleiri flokka.
Allir þingmenn stjórnarmeirihluta gætu bent á mál sem væru ekki nákvæmlega eins og þeir vildu hafa þau. Spurningin væri hvað þeir vildu fá út úr samstarfinu og hvort þeir tryðu á verkefnið.
„Trúirðu á verkefnið og ef maður gerir það ekki þá gerir maður sennilega eins og Ingvar gerði.“
Hún sagði þau sem eftir væru ekki deila þeirri afstöðu sem hún lýsti sem „allt eða ekkert“ hjá Ingvari. Þau vildu gera málamiðlanir til að ná markmiðum sem þau teldu þjóna almannahagsmunum.
Hallalaus fjárlög ekki til málamiðlunar
Spurð hvort nóg hefði verið gert til að halda Ingvari í flokknum sagðist Hanna Katrín ekki vita það. Hefði það hins vegar snúist um að hverfa frá verkefninu um að skila hallalausum fjárlögum hefði það aldrei komið til greina.
Hún sagðist ekki hafa rætt við Ingvar eftir að hann tók ákvörðunina. Hún hefði heldur ekki frétt af henni frá honum sjálfum heldur heyrt hana utan að sér.
Um gagnrýni á ákvarðanatöku innan flokksins sagði Hanna Katrín að vinnubrögðin samræmdust reynslu hennar af starfi í þingflokki. Væri Ingvar að vísa til tiltekinna samtala við ákveðna aðila yrði hann að skýra það betur.
Hún sagði það vera forystu flokksins að meta hvort eitthvað mætti betur fara, án þess þó að fullyrða að svo væri. Sjálfri þætti henni gott að vera í Viðreisn og hún næði tali af þeim sem hún þyrfti að ræða við.
Aðspurð hvort það væri erfitt að formaður flokksins gegndi jafnframt embætti utanríkisráðherra sagði hún það vera áskorun, bæði fyrir formanninn og þingflokkinn. Öflugur varaformaður hefði hins vegar stigið sterkt inn og þau næðu utan um verkefnin.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗