Segir ríkisstjórnina „í upplausn“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir ríkisstjórnina hafa verið orðna veika áður en Ingvar Þóroddsson yfirgaf Viðreisn og telur hana nú vera í upplausn. Brotthvarf Ingvars sé skiljanlegt og stjórnarandstöðunni sé mikill styrkur að honum.
Þetta kom fram í máli Sigmundar Davíðs þegar hann ræddi við blaðamenn í þinghúsinu í dag um vistaskipti Ingvars úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn.
Sigmundur sagði ákvörðunina ekki koma sér að öllu leyti á óvart. Ingvar hefði lengi talað um mikilvægi þess að Viðreisn stæði við kosningaloforð sín eða rifjaði þau að minnsta kosti upp.
„Ég taldi nú kannski stefna í þetta um nokkurt skeið en nú er það orðið að veruleika,“ sagði Sigmundur og bætti við að Ingvar hefði að hans mati útskýrt ákvörðun sína mjög vel.
Hefur ekki verið á þingmannaveiðum
Spurður hvort einhverjir þingmenn hefðu haft samband við hann eða væru að ræða við Miðflokkinn svaraði Sigmundur:
„Nei, ég hef ekki verið á þingmannaveiðum, ef svo má segja.“
Hann sagði að þeir sem ákvæðu að skipta um flokk þyrftu að taka þá ákvörðun á eigin forsendum. Miðflokkurinn tæki vel á móti þeim sem vildu ganga til liðs við hann en sjálfur gengi hann ekki á eftir fólki í þeim efnum.
Innbyrðis vandræði geti hamlað stefnubreytingu
Aðspurður um stöðu ríkisstjórnarinnar sagði Sigmundur hana hafa verið orðna veika fyrir brotthvarf Ingvars.
„Þetta er í rauninni bara allt í upplausn, myndi ég segja.“
Hann taldi ekkert ganga upp hjá ríkisstjórninni í efnahagsmálum eða öðrum málum. Hann velti jafnframt upp þeirri spurningu hvort innbyrðis vandræði væru orðin slík að stjórnin gæti ekki tekið á málunum og breytt stefnu sinni, jafnvel þótt vilji væri til þess.
Giskar á að einn fari til viðbótar
Spurður hvort hann byggist við að fleiri yfirgæfu stjórnarmeirihlutann á komandi mánuðum svaraði Sigmundur:
„Kannski einn í viðbót svona fyrst þú talar um komandi mánuði.“
Þegar gengið var á hann um hver það gæti verið tók hann ítrekað fram að um ágiskun væri að ræða. Hann væri ekki að tala um neinn sérstakan heldur reyna að álykta út frá því að einhverjir stjórnarþingmenn kynnu að vera ósáttir við gang mála.
Hann nefndi hvorki þingmann né flokk og sagði að hann þyrfti meiri tíma til að þróa spána eða afmarka hana við ákveðinn flokk.
Telur mikinn styrk að Ingvari
Sigmundur taldi stjórnarandstöðuna hafa styrkst við að Ingvar gengi til liðs við hana.
Hann lýsti Ingvari sem mjög klárum manni og prinsippmanni. Skoðanir hans féllu að mati Sigmundar ágætlega að áherslum stjórnarandstöðunnar, meðal annars í skattamálum og varðandi frelsi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗