Sigmar sendir Ingvari væna pillu
Innlent | mbl | 16.11.2026 | 16:13 | Uppfært 16:35
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, bendir Ingvari góðfúslega á að hann hafi sjálfur greitt atkvæði með nokkrum þeirra mála sem hann nú gagnrýnir. mbl.is/María/Hallur
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir í Facebook færslu leiðinlegt að horfa á eftir Ingvari Þóroddssyni úr þingflokknum. Hann bendir honum þó á að nota orðið „svik“ sparlega.
Stundum erfitt að vera í stjórnarmeirihluta
„Ég óska Ingvari velfarnaðar í nýrri vist en bendi samt góðfúslega á að hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú. Og sennilega færi líka betur á því að nota orðið „svik“ sparlega,“ skrifar Sigmar.
Þá segir hann mikla ábyrgð fylgja því að vera í stjórnarmeirihluta.
„Nærri 10 prósent kjósenda í Norðausturkjördæmi sem treystu Ingvari fyrir þingmennsku voru auðvitað ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Né heldur margra ára hallareksturinn sem flokkurinn skildi eftir sig. Það fylgir því mikil ábyrgð að vera í stjórnarmeirihluta og stundum þarf að taka erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗