Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“
Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. nóvember 2026 16:36
Ingvar Þóroddsson áður þingmaður Viðreisnar en nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi og sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar gagnrýna báðir Ingvar Þóroddsson alþingismann, fyrir skýringar hans á því hvers vegna hann hefur ákveðið að segja sig úr Viðreisn og færa sig yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Segja Jónas Már og Sigmar að Ingvar hafi vitað vel hvaða aðgerðir ríkisstjórnin ætlaði sér að ráðast í á kjörtímabilinu og hafi raunar greitt atkvæði með sumum þeirra mála sem hann gagnrýni nú.
Í yfirlýsingu sinni vegna vistaskiptanna gagnrýndi Ingvar meðal annars hækkandi álögur á ferðaþjónustuna, innleiðingu kílómetragjaldsins, niðurskurð á almenningssamgöngum á landsbyggðinni, samgönguáætlun og þá sérstaklega þann hluta hennar er sneri að Fjarðarheiðargöngum og bað Austfirðinga afsökunar á því að hafa greitt atkvæði með áætluninnni. Einnig gagnrýndi hann breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú, veiðigjaldi og sömuleiðis hugmyndir um fækkun þingmanna í hans kjördæmi, norðaustur.
Í Facebook-færslu segir Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar að það sé leitt að missa Ingvar úr flokknum en gagnrýnir hann um leið:
„Ég óska Ingvari velfarnaðar í nýrri vist en bendi samt góðfúslega á að hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú. Og sennilega færi líka betur á því að nota orðið „svik“ sparlega. Nærri 10 prósent kjósenda í Norðausturkjördæmi sem treystu Ingvari fyrir þingmennsku voru auðvitað ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Né heldur margra ára hallareksturinn sem flokkurinn skildi eftir sig. Það fylgir því mikil ábyrgð að vera í stjórnarmeirihluta og stundum þarf að taka erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir.“
Sigmar Guðmundsson
Tvö ár
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs og sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra gagnrýnir Ingvar einnig í pistli á Facebook:
„Þingmaður segir sig úr stjórnmálaflokki sem hefur stefnu sem hann var kosinn til að framfylgja. Þingmaðurinn kveðst vera að fylgja sannfæringu sinni og telur svo upp nokkur atriði sem hann finnur flokknum sínum fyrrverandi til foráttu. Gagnrýnin er ýmist röng eða misvísandi, og virðist raunar helst snúa að því að þingmaðurinn vilji áfram hallarekstur ríkissjóðs.“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Jónas Már segir það hafa legið fyrir í upphafi kjörtímabilsins hvað ríkisstjórnin ætlaði sér að gera:
„Það vill svo til að þetta eru atriði sem beint eða óbeint voru öll rakin í stjórnarsáttmálanum og sem hann samþykkti í þingflokki (líkt og raunar öll þau mál sem hann nú er ósáttur við). Það hefur kannski tekið þingmanninn tvö ár að lesa sáttmálann. Eða þá einfaldlega að hann sé ekki að fylgja eigin sannfæringu, heldur hafi honum bara fundist of erfitt að standa á bak við kerfisbreytingar þegar í ljós kom að það voru ekki allir himinlifandi með breytingarnar. Það eru sjaldan allir ánægðir með breytingar sem skipta máli. Það er kannski ekki á allra færi að vera þingmaður í stjórnarmeirihluta.“
Vísar Jónas Már eins og Sigmar að lokum til þess að kjósendur Viðreisnar í Norðausturkjördæmi hafi ekki verið að greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði:
„Í öllu falli er ljóst að kjósendum Viðreisnar stóð til boða að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í síðustu þingkosningum en gerðu það ekki. Þingmaðurinn hefði mögulega átt að hafa það í huga.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗