Eiður Smári og Kári Árna taka Arnar til bæna - „Hvaða skilaboð eru það?“
Aron Einar Gunnarsson er á varamannabekknum í síðasta leik sínum fyrir íslenska landsliðið. Sérfræðingar eru ósáttir við Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfara vegna ákvörðunar hans.
Ísland mætir Lúxemborg í lokaleik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli nú klukkan 17. Jafntefli eða sigur tryggja toppsætið í riðlinum og sæti í B-deild. Þá gæti fyrsta sætið einnig tryggt Strákunum okkar umspilssæti um sæti á EM 2028, ef þeir komast ekki þannig í gegnum undankeppnina.
Það er miðvarðahallæri hjá íslenska liðinu og tekur Hörður Björgvin Magnússon, sem byrjaði síðasta leik, út leikbann í dag. Aron kom inn af bekknum í síðasta leik en það er þó Hjörtur Hermannsson, sem var utan hóps en kallaður inn fyrir Hörð, sem byrjar leikinn í dag.
„Það blasti við okkur að Aron færi í varnarlínuna. Menn sem eru ekki í hóp en byrja svo eftir að þeir eru kallaðir inn, mér finnst það alltaf sérstakt. En ég hefði viljað sjá Aron ljúka þessu með bandið og hætta á einhverjum hápunkti,“ sagði Kári Árnason á Sýn Sport.
„Mér finnst það rosalega sérstakt, ekki bara því þetta er Aron Einar Gunnarsson, heldur að leikmaður sem var ekki í hóp upphaflega komi inn í byrjunarliðið. Hvaða skilaboð eru það til leikmanna á bekknum? Manni finndist eðlilegt að þú færir af bekknum í byrjunarliðið og ef þú ert utan hóps farir þú á bekkinn,“ sagði Eiður Smári.
Arnar var í kjölfarið spurður út í málið í viðtali við Sýn Sport.
„Ég hafði alltaf hugsað þetta þannig að Aron Einar lokaði leikjum með sinni kunnáttu og visku. Mér finnst engin ástæða til að breyta því,“ sagði hann.
Aron Einar mun jafna landsleikjametið hjá íslenska landsliðinu komi hann við sögu í dag. Arnar hefur jafnframt verið gagnrýndur fyrir að spila Aroni aðeins í einum leik af fjórum í síðasta landsleikjaglugga og koma þar með í veg fyrir að hann gæti bætt metið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗