Lilja skynjar vaxandi óróa í stjórnarliðinu

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segist skynja vaxandi óróa í stjórnarliðinu.

Hún telur brotthvarf þingmanna úr Viðreisn erfitt fyrir formann flokksins og gagnrýnir efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, sem hún segir ekki sjálfbæra fyrir landsbyggðina, heimilin og fyrirtækin í landinu.

Þetta kom fram í máli Lilju þegar hún ræddi við blaðamenn í þinghúsinu í dag í kjölfar brotthvarfs Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn.

Lilja sagði ríkisstjórnina þó enn hafa þokkalegan meirihluta og benti á að bæði Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins, og Jón Gnarr, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, segðust styðja hana.

Hún beindi gagnrýni sinni einkum að efnahagsstefnu stjórnarinnar. Atvinnuleysi væri að aukast og verðbólga hefði hækkað á hennar vakt. Sú leið að hækka skatta og gjöld á heimilin væri að hennar mati ekki sjálfbær og fólk væri farið að sjá það.

Erfitt fyrir formann Viðreisnar

Spurð um stöðuna í Viðreisn, í ljósi þess að tveir þingmenn hefðu yfirgefið þingflokkinn á um mánuði, sagði Lilja að það hlyti að vera erfitt fyrir formann flokksins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Þegar hún var spurð hvort Þorgerður Katrín bæri ábyrgð á stöðunni og þyrfti að segja af sér svaraði Lilja því ekki beint. Hún sagði formann Viðreisnar þurfa að tala um stöðu efnahagsmála eins og hún væri í raun.

„Það þýðir ekki bara að koma aftur og aftur og segja: Heyrðu, hérna, við erum að stoppa í 800 milljarða gat. Það er bara rangt.“

Lilja hélt því fram að afgangur hefði orðið þegar árið 2025 ef þeirri stefnu sem fyrri ríkisstjórn hefði fylgt hefði verið haldið áfram. Hún sagði jafnframt verðbólgu og vaxtagjöld hafa aukist á vakt núverandi ríkisstjórnar og taldi stjórnarþingmenn sjá þann vanda.

Vill samstarf um verðbólguna

Aðspurð hvort hún skynjaði óróleika meðal annarra þingmanna stjórnarmeirihlutans sagði Lilja óánægjuna sem hún yrði vör við snúa að efnahagsstefnunni, trúverðugleika og stöðu landsbyggðarinnar.

Hún gagnrýndi einnig áform um hærri gjöld á ferðaþjónustuna og spurði hvernig ætti að láta dæmið ganga upp.

„Við höfum alltaf sagt í Framsókn: Það eru vöxtur, vinna, velferð. Og ef þú ert ekki að vaxa og ert ekki að hugsa um það þá nærðu ekki öllu hinu.“

Lilja taldi verðbólguvandann svo mikinn að vinna ætti saman að því að ná verðbólgunni niður. Hún gagnrýndi formann Viðreisnar fyrir að viðurkenna ekki vandann.

Vildi ekki tjá sig um samtöl við þingmenn

Í lok viðtalsins var Lilja spurð um ummæli Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að þingmenn stjórnarliðsins hefðu komið að máli við hana og að fleiri gætu yfirgefið stjórnarflokkana.

Spurð hvort einhverjir hefðu komið að máli við hana sjálfa og hvort hún byggist við frekara brotthvarfi úr stjórnarliðinu sagðist Lilja ekki vilja segja neitt um það á þessum tímapunkti. Hún tók hins vegar fram að hún fyndi fyrir vaxandi óróa.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅