Góður árangur en kostaði félagið tæpa milljón
Grindavík/Njarðvík fékk samtals 920 þúsund krónur í sektir á nýliðnu tímabili þar sem Gylfi Tryggvason, þáverandi þjálfari kvennaliðsins í knattspyrnu, hafði ekki tilskilin þjálfararéttindi.
Liðið var sektað 23 sinnum, um 40 þúsund krónur í hvert skipti. Axel Vignisson, lögfræðingur KSÍ, staðfestir þetta í samtali við Fótbolta.net.
Þjálfurum liða í efstu deild karla og kvenna er gert að hafa UEFA Pro-þjálfaragráðu. Sektarákvæðið vegna brota á þeirri kröfu tók gildi fyrir tímabilið 2026 og verður því áfram beitt.
Gylfi, sem hefur síðan tekið við Víkingi, náði mjög góðum árangri með Grindavík/Njarðvík og lék liðið m.a. bikarúrslitaleikinn á Laugardalsvelli.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗