Karl og Vilhjálmur sagðir einhuga um framtíð Harry innan konungsfjölskyldunnar - „Enginn vafi á því“
Karl III Bretakonungur og Vilhjálmur Bretaprins munu vera á einu máli um framtíð yngri prinsins, Harry, og eiginkonu hans innan bresku konungsfjölskyldunnar. Hjónin eru snúin aftur til Bretlands og hafa margir velt því fyrir sér hvort það þýði að þau muni aftur taka að sér formlegt hlutverk innan konungsfjölskyldunnar.
„Það er ekki í boði að vera með annan fótinn inni og hinn úti,“ segir Kinsey Schofield, sem er einn vinsælasti blaðamaður Bandaríkjanna þegar kemur að bresku konungsfjölskyldunni, í samtali við Fox-fréttastofuna. Konungur og krónprins sjái ekki fyrir sér neina málamiðlun hvað varðar mögulega endurkomu Harry og Meghan til konunglegra skyldustarfa.
Það er þó ekki þar með sagt að engar sættir séu fram undan hjá feðgunum. Karl mun halda dyrunum opnum fyrir persónulegar sættir við yngri son sinn, en þar er línan dregin.
Konungur og erfinginn samstíga
Kinsey segir Vilhjálm virða það að faðir hans hafi ákveðið að grafa stríðsöxina svo hann geti átt í samskiptum við yngri son sinn og barnabörn. Að sama bragði áskilji Vilhjálmur sér réttinn til að taka sínar eigin ákvarðanir. Krónprinsinn horfi til framtíðar og þrái þar umfram allt stöðugleika. Það að Harry sé snúinn aftur heim frá Bandaríkjunum þýði ekki að allt fjaðrafokið í kringum flutningana, þegar hann sagði sig frá konunglegum skyldum í miklu fússi, sé gleymt og grafið.
„Þannig að kannski er spurningin ekki hvenær Vilhjálmur sættist við Harry heldur hvort hann telji að sættir muni færa frið og stöðugleika inn í líf hans. Eins og staðan er núna er Vilhjálmur prins ekki sannfærður um að friður fylgi Harry.“
Rithöfundurinn Russel Myers, sem hefur mikið skrifað um konungsfjölskylduna, er á sama máli en hann segir í samtali við People að Karl og Vilhjálmur hafi báðir ákveðið að setja hertogahjónunum, Harry og Meghan, fótinn fyrir dyrnar hvað varðar konungleg skyldustörf.
„Konungurinn og Vilhjálmur eru algjörlega sammála um að Sussex-hjónin komi ekki fram fyrir hönd konungsfjölskyldunnar. Það er enginn vafi á því hversu samstíga þeir eru í þessu máli.“
Buckingham-höll sendi frá sér yfirlýsingu fyrir hönd konungs þegar ljóst var að hertogahjónin væru að snúa aftur og þar var ítrekað að hjónin kæmu ekki fram í nafni konungsfjölskyldunnar og að allt þeirra góðgerðarstarf væri á eigin vegum. Þau hefðu ekki heimild til að nota konunglega titla.
Ekki sanngjarnt að blanda Díönu í deilurnar
Kinsey segir að Vilhjálmur sé ekki brjálaður út í bróður sinn. Hann hafi hreinlega öðrum hnöppum að hneppa. Frá því að Harry flutti árið 2020 hafi hvert áfallið riðið yfir á eftir öðru. Afi hans, Filippus prins, lést árið 2021 og Elísabet II Englandsdrottning lést ári seinna. Katrín prinsessan, eiginkona Vilhjálms, og faðir hans greindust svo með krabbamein.
„Á þessum tíma var Harry fjarverandi að hrauna yfir konungsfjölskylduna á opinberum vettvangi. Traustið hefur beðið hnekki og traust verður ekki endurheimt bara því Harry og Meghan fluttu aftur til Bretlands. Ef Vilhjálmur prins getur ekki treyst Harry sem bróður þá getur hann klárlega ekki treyst honum til að vera fulltrúi konungsveldisins sem Vilhjálmur mun dag einn erfa.“
Margir hafa velt því fyrir sér hvort að bræðurnir muni ná aftur saman á næsta ári þegar 30 ár verða liðin frá því að móðir þeirra, Díana prinsessa, lést í bílslysi. Kinsey er ekki svo viss.
„Mér finnst alltaf smá óþægilegt þegar fólk dregur nafn Díönu prinsessu inn í þetta og segir að Díana hefði viljað að strákarnir hennar myndu sættast. Ekkert okkar veit hvað Díönu hefði þótt um allt sem hefur átt sér stað síðan hún dó. En við vitum það bara út frá því hvernig Díana brást við þegar hún taldi einhvern hafa brugðist trausti sínu að hún var fullfær um að losa sig við slíka menn úr sínu lífi.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗