Fá undanþágu frá skólagjöldum

Háskóli Íslands.

Háskóli Íslands. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Nemar frá löndum utan EES verða undanskildir skólagjöldum séu þeir í diplómunámi í íslensku sem öðru máli, hafi atvinnuleyfi og starfi í beinni meðferð eða umönnun sjúklinga sem starfsmenn heilbrigðiskerfisins.

Þetta á líka við um nema sem vinna við kennslu-, uppeldis- eða umönnunarstörf í leikskóla eða grunnskóla. Undanþágan nær ekki til BA-prófs eða MA-prófs að því er virðist. 

Háskólum verður einnig greitt sérstaklega fyrir vegna samfélagslegs hlutverks þeirra. Þar á meðal eflingu byggða og fámennar en mikilvægar grunngreinar.

Reglur um breytingar á fjárlögum til háskóla ríkisins birtust í dag og má sjá í Stjórnartíðindum. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skrifar undir reglubreytinguna sem tekur gildi strax í dag.

Logi Einarsson.

Hælisleitendur og doktorsnemar fá undanþágur

Handhafar dvalarleyfis vegna alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða, fjölskyldusameiningar eða þróunarsamvinnu Íslands.

Doktorsnemar og skiptinemar verða jafnframt undanskildir skólagjöldunum.

Nýverið ákvað ríkisstjórnin að ríkissjóður myndi ekki standa straum af kostnaði við háskólanám nema frá löndum utan EES og því hækkuðu skólagjöldin verulega. Í mörgum tilfellum kostar önnin yfir milljón krónur fyrir skólaönnina.

Samfélagslegt hlutverk tekið með í reikninginn

Einnig er kveðið á um í breytingunum að háskólum verði greitt aukalega vegna samfélagslegs hlutverks þeirra. 

„Fjárframlögum vegna samfélagslegs hlutverks skal skipta niður í sjö flokka.“

Þeir eru: 

  • Efling byggða, 14%.
  • Stefna háskóla og áherslugreinar, 39,6%.
  • Stuðningur við fámennar, mikilvægar grunngreinar, 4,6%.
  • Kennsluauki, 20%. 
  • Rannsóknarauki, 21,8%.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅